Árdegismessa
Alla miðvikudaga, allt árið um kring er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Á morgun, miðvikudaginn 16. júní, þjónar séra Birgir Ásgeirsson fyrir altari, Ómar Kristjánsson flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn, Sigurður Björnsson er forsöngvari og Birna Hjaltadóttir aðstoðar við útdeilingu. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsalnum í umsjá Vilhjálms Grímssonar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 15/6 2010 kl. 11.08