Árdegismessa í Hallgrímskirkju
Á morgun, miðvikudaginn 30. júní, er morgunmessa kl. 08.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari, séra María Ágústsdóttir flytur hugvekju, Sigrún V. Ásgeirsdóttir fer með bæn, Sigurður Björnsson er forsöngvari og Grétar Einarsson aðstoðar við útdeilingu. Á eftir er morgunverður í safnaðarsalnum í umsjá Þorsteins R. Guðlaugssonar og Birnu Gunnarsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 29/6 2010 kl. 11.08