Helgin 19. og 20. júní í Hallgrímskirkju
Alþjóðlegt orgelsumar heldur áfram með hádegistónleikum á laugardag 19. júní, kl. 12.00. Þar munu Guðrún Birgisdóttir og Hörður Áskelsson láta flautu- og orgelhljóma fylla hvelfingu Hallgrímskirkju. Þau munu leika perlur eftir meistara eins og Johann Sebastian Bach og Gabriel Fauré, sem og nýrri tónlist eftir ástsæl íslensk tónskáld eins og Þorkel Sigurbjörnsson og Áskel Másson. Miðaverð á tónleikana er 1.000 kr. og frítt er inn fyrir félaga Listvinafélags Hallgrímskirkju. Guðrún og Hörður hafa leikið saman í fjölmörg ár og um síðustu jól kom út hljómdiskurinn Minning með mörgum þeirra verka sem hér verða leikin. Tónleikar þessir eru útgáfutónleikar nýja disksins og verður hann seldur við innganginn og kostar kr. 1.500.-.
Á sunnudaginn 20. júní, sem er þriðji sunnudagur eftir þrenningarhátíð er messa kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund er fyrir börnin. Kaffisopi á eftir messu að venju. Allir innilega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 18/6 2010 kl. 10.36