Hallgrímskirkja

 

Helgin í Hallgrímskirkju 26. og 27. júní 2010

Alþjóðlegt orgelsumar heldur áfram og eru tvennir tónleikar núna um helgina. Þar munu Jessica Buzbee básúnuleikari frá Svíþjóð og Hörður Áskelsson organisti og kantor Hallgrímskirkju leika. Efnisskrá tónleikanna er fjölbreytt og spennandi og laugardagstónleikarnir hefjast á hinum þekkta sálmforleik Johanns Sebastians Bach “Vakna, Síons verðir kalla”. Síðan hljóma meðal annars verk úr Buxheimer orgelbókinni frá 15. öld og Morceau Symphonique eftir Guilmant. Á efnisskrá sunnudagsins bætast við verk eftir Gardner Read, Johann Sebastian Bach sem og verkið Signing eftir Huga Guðmundsson.  Laugardagstónleikarnir hefjast kl. 12.00 og er miðaverð kr. 1000.-. Sunnudagstónleikarnir hefjast kl. 17.00 og er miðaverð kr. 1.500.-. Félagar í Listvinafélagi Hallgrímskirkju fá frítt inn. Sjá einnig á heimasíðu Listvinafélagsins: listvinafelag.is.

Á sunnudaginn 27. júní, sem er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir börnin og kaffisopi að venju eftir messu. Allir innilega velkomnir.

Kl. 14.00 er ensk messa. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson og Guðrún Finnbjarnardóttir er forsöngvari. Kaffi og með því á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 24/6 2010 kl. 12.24

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS