Hallgrímskirkja

 

Helgin í Hallgrímskirkju

Á laugardaginn 5. júní hefst Alþjóðlegt orgelsumar 2010 í Hallgrímskirkju. Upphafstónleikarnir eru í höndum Björns Steinars Sólbergssonar organista við Hallgrímskirkju og skólastjóra Tónskóla þjóðkirkjunnar. Tónleikarnir hefjast kl. 12.00. Á efnisskránni eru verk eftir íslensk og frönsk tónskáld ásamt Piece d’orgue eftir Johann Sebastian Bach.

Á sunnudaginn 6. júní, sem er fyrsti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00 og sögustund fyrir börnin. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Um sögustundina fyrir börnin sér Rósa Árnadóttir. Að venju er boðið upp á kaffisopa eftir messu. Allir innilega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 3/6 2010 kl. 12.11

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS