Helgin í Hallgrímskirkju
Á laugardaginn 12. júní eru tónleikar Alþjóðlegs orgelsumars kl. 12.00. Björn Steinar Sólbergsson organisti Hallgrímskirkju og skólastjóri Tónskóla þjóðkirkjunnar leikur verk eftir íslensk og frönsk tónskáld. Aðgangseyrir kr. 1000.- við innganginn. Listvinir (félagsmenn í Listvinafélagi Hallgrímskirkju) fá frítt inn á tónleikana.
Á sunnudaginn 13. júní, sem er annar sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Leonard F. Ashford frá Bandaríkjunum. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi að venju á eftir messunni. Allir innilega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 10/6 2010 kl. 14.45