Hallgrímskirkja

 

Messur í Hallgrímskirkju 23. júní 2010

Á morgun, miðvikudaginn 23. júní, sem er aðfangadagur Jónsmessu, er árdegismessa kl. 08.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, Þorsteinn R. Guðlaugsson flytur hugvekju, Birna Gunnarsdóttir fer með bæn, Grétar Einarsson er forsöngvari og Vilhjálmur Grímsson aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir messunni er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum í umsjá Sigrúnar V. Ásgeirsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Á miðvikudagskvöld er nessa kl. 23.00. Jónsmessa. Séra Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir flytur hugvekju og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og djáknunum Magneu Sverrisdóttur og Rósu Kristjánsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir messusönginn, stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson. Messan endar á útgöngusálmi, þar sem söfnuðurinn gengur syngjandi út í sumarið og birtuna. Allir innilega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 22/6 2010 kl. 13.10

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS