Stúlknakór í Hallgrímskirkju 8. júní
Stúlknakór Kaupmannahafnar kemur fram á tónleikum í Hallgrímskirkju á morgun þriðjudag 8. júní klukkan 20.00. Kórinn flytur fjölbreytta efnisskrá, m.a. verk eftir norræn tónskáld. Stjórnandi kórsins er Philip Schmidt-Madsen organisti, sem einnig leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Kórinn tók um helgina þátt í Kórastefnu við Mývatn, þar sem hann vakti mikla athygli fyrir góðan söng. Þetta er eina tækifærið fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins til að heyra þennan rómaða kór að þessu sinni.
Birna Hjaltadóttir, 7/6 2010 kl. 11.59