Alþjóðlega orgelsumarið og helgihald í Hallgrímskirkju
Steingrímur Þórhallsson, organisti Neskirkju í Reykjavík, leikur á orgeltónleikum helgarinnar í Hallgrímskirkju. Á laugardagstónleikunum leikur Steingrímur þrjá konserta frá barokktímanum, en á eftirskrá sunnudagsins eru mun yngri verk, Sonata Eroica eftir Stanford, frumflutningur á Preludia pesante eftir Steingrím sjálfan og loks Prelúdía og fúga um nafnið Alain eftir Duruflé. Tónleikarnir á laugardag hefjast kl. 12. Miðaverð 1.000 kr. Sunnudagstónleikarnir hefjast kl. 17 og miðverð 1.500 kr.
Sunnudaginn 1. ágúst, sem er níundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð er messa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari, messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund er fyrir börnin. Steingrímur Þórhallsson leikur eftirspil messunnar.
Birna Hjaltadóttir, 30/7 2010 kl. 13.18