Hallgrímskirkja

 

Alþjóðlegt orgelsumar

Fimmtudaginn 22. júlí kl. 12.00 verða hádegistónleikar í sumartónleikaröðinni Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju sem haldnir eru í samvinnu við Félag íslenskra organista. Sveinn Arnar Sæmundsson organisti Akraneskirkju og Kristín Sigurjónsdóttir fiðluleikari spila saman á hádegistónleikunum í dag. Þau munu m.a. frumflytja verk fyrir fiðlu og orgel eftir Hildigunni Rúnarsdóttir. Einnig verða verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Jónas Helgason, J.S. Bach og Felix Mendelsohn á eftisskránni. Aðgangseyrir er 1000 kr.

Birna Hjaltadóttir, 22/7 2010 kl. 9.39

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS