Alþjóðlegt orgelsumar og helgihald í Hallgrímskirkju
Helgina 10. og 11. júlí verða tvennir tónleikar á vegum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Dame Gillian Weir, breskur konsertorganisti leikur tónleikunum. Á laugardag kl. 12 leikur hún m.a. verk eftir landa sína Stanford, Howells og Parry. Tónleikarnir stand í u.þ.b. hálftíma og aðgangseyrir er 1.000kr. Á síðari tónleikunum sunnudag kl. 17, leikur hún verk eftir tónskálk á borð við Händel, Messian, Liszt og Vierna. Sunnudagstónleikarnir standa í u.þ.b. klukkustund og aðgangseyrir er 1.500kr. Aðgangur ókeypis fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju á alla viðburði Alþjóðlegs orgelsumars.
Á sunnudaginn 11. júlí, sem er sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt rev. Leonard Ashford. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Einsöng syngur Sólbjörg Björnsdóttir. Sögustund er fyrir börnin. Dame Gillian Weir leikur eftirspil messunnar. Kaffisopi á eftir messunni að venju.
Birna Hjaltadóttir, 9/7 2010 kl. 12.10