Hallgrímskirkja

 

Alþjóðlegt orgelsumar og helgihald í Hallgrímskirkju

Alþjóðlegt orgelsumar dafnar enn sem fyrr og sóttu um 600 manns viðburði tónleikaraðarinnar í síðustu viku. Tónlistarlífið í Hallgímskirkju heldur áfram af sama krafti því á næstu vikum verða fernir tónleikar í viku hverri, einir kórtónleikar og þrennir fjölbreytilegir orgeltónleikar.

Helgina 17. og 18. júlí bjóðum við Winfried Bönig, dómorganistann í Köln, velkominn í Hallgrímskirkju. Dómorganistinn í Köln er þekktur víða um heim bæði sem orgelleikari og hljómsveitarstjóri. Auk þess er hann mikils metinn kennari við Tónlistarháskólann í Köln. Hann heldur reglulega tónleika víða um heim og hefur leikið inn á fjölmarga geisladiska. Laugardagstónleikarnir sem hefjast kl. 12 á hádegi hefjast á Prelúdíu og fúgu í D-dúr eftir J.S. Bach. Á eftir fylgja verk eftir Pachelbel, Mozart og Widor, en tónleikunum lýkur á hinni frægu tokkötu úr 5. sinfóníu Widors. Á tónleikum sunnudagsins, sem hefjast kl. 17, heyrast meðal annars orgelumritanir á hljómsveitarverkunum Funérailles eftir Liszt og Plánetunum eftir Holst. Miðaverð á hádegistónleikana er 1000 kr en á tónleikum sunnudagsins er miðaverðið 1500 kr. Miðasala er við innganginn. Frítt er á alla tónleikana fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju.

Sunnudaginn 18. júlí, sem er sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Douglas A. Brotchie. Sögustund er fyrir börnin. Winfried Bönig leikur eftirspil messunnar. Kaffisopi á eftir messunni að venju.
 
 
 

 

Birna Hjaltadóttir, 16/7 2010 kl. 12.50

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS