Alþjóðlegt orgelsumar og helgihald í Hallgrímskirkju
Á laugardag og sunnudag mun tónleikagestum gefast kostur á að hlýða á Guðnýju Einarsdóttur. Guðný stundaði orgelnám hjá Marteini H. Friðrikssyni dómorganista en hélt síðan til frekara náms í Danmörku og Frakklandi. Hún gegnir nú söðu organista við Fella- og Hólakirkju í Reykjavík. Á efnisskrá laugardagsins er umritun J.S. Bach á fiðlukonsert eftir Johan Ernst, umritun Björns Steinars Sólbergssonar á Píanóstykkjum eftir Pál Ísólfsson og loks Chaconne einnig eftir Pál Ísólfsson. Á sunnudagstónleikunum heyrast eingöngu umritanir fyrir orgel an aðalverk tónleikanna er Myndir á sýningu eftir Modest Mussorgsky, þar sem orgelið bregður sér í hlutvek heillar sinfóníuhljómsveitar. Tónleikarnir á laugardag hefjast kl. 12 á hádegi og er miðaverðið aðeins 1.000 kr. Sunnudagstónleikarnir hefjast kl. 17 og miðaverðið er 1.500 kr. Frítt er fyrir félaga í Listvinafélagi Hallgrímskirkju á alla tónleika sumarsins!
Sunnudaginn 25. júlí, sem er áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir börnin. Enska messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Forsöngvari er Halldóra Víðisdóttir og organisti Hörður Áskelsson.
Birna Hjaltadóttir, 23/7 2010 kl. 12.44