Hádegistónleikar Schola cantorum
Miðvikudaginn 21. júlí eru hádegistónleikar kl. 12 í Hallgrímskirkju. Schola cantorum syngja undir stjórn Harðar Áskelssonar afar fallega og metnaðarfulla efnisskrá sem samanstendur af verkum eftir eldri meistara eins og Händel, Tallis og Byrd. Einnig munu nýrri verk eftir Trond Kverno og Knut Nystedt hljóma sem og íslenskar perlur eftir Smára Ólason og Þorkel Sigurbjörnsson. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Birna Hjaltadóttir, 20/7 2010 kl. 13.17