Alþjóðlegt orgelsumar - síðasta tónleikahelgi
Síðustu tónleikar Alþjóðlegs orgelsumars eru núna um helgina 14. og 15. ágúst. Á laugardag kl. 12.00 og sunnudag kl. 17.00 mun Halgeir Schiager, organisti við Sofienberg kirkjuna í Osló leika á Klais orgel Hallgrímskirkju verk eftir Johann Gottlob Schneider, Gustav Merkel, Petr Eben og Norðmennina Leif Solberg og Kjell Mörk Karlsen. Aðgangseyrir er kr. 1000.- á laugardag og kr. 1.500 á sunnudag.
Halgeir Schiager er einn fremsti orgelleikari Norðmanna. Hann lærði meðal annars hjá Franz Lehrndorfer í München og Daniel Roth i Strassborg. Halgeir hefur haldið tónleika víða í Evrópu, þar með talið á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju, og leikið inn á upptökur í Þýskalandi og Noregi.
Birna Hjaltadóttir, 12/8 2010 kl. 14.26