Árdegismessa og tónleikar
Á morgun, miðvikudaginn 25. ágúst, er morgunmessa að venju kl. 08.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, Sigrún V. Ásgeirsdóttir flytur hugvekju, Vilhjálmur Grímsson fer með bæn, Sigurður Björnsson er forsöngvari og Ómar Kristjánsson aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir er morgunkaffi í safnaðarsal kirkjunnar í umsjá Ásu Guðjónsdóttur og Sigurðar Bjarnasonar. Allir innilega velkomnir.
Kl. 12.00 eru tónleikar Schola cantorum. Á efnisskránni eru verk eftir íslensk og erlend tónskáld. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Aðgangseyrir kr. 1000.-
Birna Hjaltadóttir, 24/8 2010 kl. 13.18