Árdegismessa og tónleikar Schola cantorum
Á morgun, miðvikudaginn 11. ágúst, er morgunmessa í Hallgrímskirkju að venju kl. 08.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn, sr. Ása Björk Ólafsdóttir er forsöngvari og Sigrún V. Ásgeirsdóttir aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir messunni, sem er um það bil 40 mínútur, er morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Vilhjálmur Grímsson sér um kaffið og töfrar fram ýmsar tegundir af brauði og áleggi. Allir innilega velkomnir.
Hádegistónleikar Schola cantorum eru kl. 12.00 - 12.30. Á efnisskránni er fögur kirkjutónlist, meðal annars tengd sálmum Hallgríms Péturssonar. Aðgangseyrir við innganginn kr. 1.000.-. Verið velkomin í Hallgrímskirkju.
Birna Hjaltadóttir, 10/8 2010 kl. 12.06