Hallgrímskirkja

 

Árdegismessa og tónleikar

Á morgun, miðvikudaginn 4. ágúst, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari, sr. Ása Björk Ólafsdóttir flytur hugvekju, Halla Messíana fer með bæn. Grétar Einarsson aðstoðar við útdeilingu sakramentis. Á eftir er morgunverður í safnaðarsalnum í umsjón Sigrúnar V. Ásgeirsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Kammerkórinn Schola cantorum er með tónleika kl. 12.00. Þau munu flytja fagra íslenska og erlenda kirkjutónlist, m.a. tengda sálmum Hallgríms Péturssonar. Aðgangseyrir er kr. 1.000.-.

Birna Hjaltadóttir, 3/8 2010 kl. 11.28

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS