Hallgrímskirkja

 

Skólamessa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 29. ágúst, sem er þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Ómari Gunnarssyni. Messuþjónar úr röðum skólafólks aðstoða. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi að venju eftir messu.

Kl. 14.00 er ensk messa. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari, organisti er Björn Steinar Sólbergsson og Guðrún Finnbjarnardóttir er forsöngvari. Kaffi og með því eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 26/8 2010 kl. 11.59

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS