Hallgrímskirkja

 

Messa og kórtónleikar í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 5. september, sem er fjórtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Safnaðarstarf vetrarins hefst og starfsfólk og sjálfboðaliðar kirkjunnar kynnt fyrir söfnuðinum. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar aðstoða. Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir messusönginn undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Í messunni syngur kórinn Heinrich-Schütz-Ensemble frá Bæjaralandi í Þýskalandi. Barnastarfið er í umsjón Magneu Sverrisdóttur djákna og Rósu Árnadóttur. Á eftir messunni er boðið upp á kaffisopa og spjall. Allir hjartanlega velkomnir.

Á sunnudaginn kl. 17.00 eru kórtónleikar. Þar syngur Heinrich-Schütz-Ensemble Vornbach sem er einn fremsti kór Bæjaralands og handhafi aðalverðlauna alþjóðlegu kórahátíðarinnar í Cork á Írlandi 2010. Stjórnandi er Martin Steidler prófessor í kórstjórn við Tónlistarháskólann í München. Á efnisskránni eru verk eftir Josquin, Schütz, Jennefelt, Tormis, Schönberg. Aðgangseyrir er kr. 2.500.-. Miðar til sölu í Hallgrímskirkju.

Birna Hjaltadóttir, 4/9 2010 kl. 11.17

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS