Árdegismessa í Hallgrímskirkju
Á morgun, miðvikudaginn 25. janúar, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari, Grétar Einarsson flytur hugvekju, Kristján Þorgeirsson fer með bæn, Grétar Einarsson er forsöngvari og Ása Guðjónsdóttir aðstoðar við altarisgönguna. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar í umsjón Sigrúnar V. Ásgeirsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 24/1 2012 kl. 13.23