Hallgrímskirkja

 

Biskupinn í Bergen Noregi prédikar í messu í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 29. janúar, sem er síðasti sunnudagur eftir þrettánda, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Herra Halvor Nordhaug biskup í Bergen í Noregi prédikar og með honum þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Ensk messa er kl. 14.00. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari.  Organisti er Hörður Áskelsson. Forsöngvari er Halldóra Viðarsdóttir. Kaffi og meðlæti á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 27/1 2012 kl. 11.12

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS