Hallgrímskirkja

 

Credo: Myndlistarsýning/Innsetning/Tónlist - Opnun sýningar í Hallgrímskirkju

Á laugardaginn 14. janúar er opnun sýningar Elínar Eddu Árnadóttur og Sverris Guðjónssonar í anddyri Hallgrímskirkju kl. 15:15. Sýningin ber heitið Credo og er óður til trúariðkunar Íslendinga í gegnum aldirnar, þar sem messuformið er uppspretta verkanna, sem tengjast tímatali og tíðasöng klaustranna.

Myndverkin eru 12 að tölu og unnin á flæðiskenndan hátt, á stórar handgerðar arkir úr baðmull, með japanbleki og “calligraphiskri” pensilskrift. Myndirnar bera nöfn tíðasöngs og messuþátta: Credo, Sanctus, Agnus Dei, Venite, Vesper, Nocturno.

Sýningin er í anddyri Hallgrímskirkju frá 14. janúar til 15. febrúar.

Birna Hjaltadóttir, 12/1 2012 kl. 15.17

     

    Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS