Messa og barnastarf í Hallgrímskirkju
Á sunnudaginn, þann 22. janúar, sem er þriðji sunnudagur eftir þrettánda, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju leiðir messusönginn undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjón Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 19/1 2012 kl. 12.18