Hallgrímskirkja

 

Ferming

        Viðtöl við fermingarbörn Hallgrímskirkju  2010
        Þriðjudagurinn 9. mars      
               
13 00   Björg  C. Blöndal   Sölvi Kolbeins   Ragnheiður Birgisd.  
               
 13 15   Anna Líf Ólafsd.   Ása Bríet Ingólfsd.   Daniel Hafliðason  
               
13 30   Daniel Nikita   Edda Líf Jónsd.   Elsa Rún Karlsd.  
               
13 45   Eysteinn  Sveinbjörnss   Freyja Jónsd.   Guðrún Ásgeirsd.  
               
               
               
14 15   Hafdís Oddgeirsd.   Hafliði Þ Jónsson   Hinrik F. Gunnarss.  
               
14 30   Ingibjörg Sóllilja B.   Jóhanna Vigdís Pétursd.   Jónas Þór Rúnarsson  
               
14 45   Kristófer Kristóferss.   Marsibil Hreinsd.   Marsibil Ósk Helgad.  
               
15 00   Silfrún Una Guðlaugsd.   Jón Garpur   Aðalbjörg  
               

* Vatnaskógarferð:  Farið verður frá Hallgrímskirkju föstudaginn 5. mars kl. 13:00. Síðan er skipulögð dagskrá í sólarhring, leikir, fræðsla, matartímar, kvöldvaka. Aðstaða í Vatnaskógi er mjög góð, ágæt húsakynni, góð gistaðstaða og síðast en ekki síst frábært íþróttahús og leikjaaðstaða. Við verðum 4-5 sem leiðbeinum og önnumst eftirlit. Ferðin er niðurgreidd af prófastsdæmi og söfnuði, en hluti fermingarbarnsins er kr. 2500.- sem þau greiða þegar þau koma í rútuna. Komið verður aftur til Reykjavíkur að Hallgrímskirkju laugardag milli kl. 14:00 og 14:30.

 

 

Fréttir af fermingarstarfinu
Janúar 2010
Kæru fermingarbörn og foreldrar/aðstandendur
Guð gefi ykkur öllum gleðilegt nýtt ár. Við þökkum samveru á liðnu ári og leggjum vongóð og eftirvæntingarfull fram á veginn.
Næsti spurningatími er þriðjudaginn 19. janúar kl. 15.00. Við minnum ykkur á að taka bókina með. Ennfremur er mikilvægt að skila “Jólaverkefninu”. Ef einhver hefur hugsanlega týnt sínu, þá er hægt að nálgast verkefnið hjá okkur, en þar sem kirkjan er nú lokuð vegna viðgerða er nauðsynlegt að hringja á undan sér. Afhent verður dagskrá fram til vors. Þó skal minnt á að helgin 5. til 7. mars verður annasöm hjá okkur. Farið verður í Vatnaskóg á föstudeginum, komið aftur á laugardegi og síðan er Æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar á sunnudegi. Takið þessa helgi frá strax í samráði við foreldra ykkar. Sjáumst 19. janúar kl. 15.00.
Kveðja,
Birgir, Magnea, Jón Dalbú.
 
 
 
 
 
 
 
 

 

Fréttir af fermingarstarfinu. 

Hinn 19 september var farið í Kaldársel.  Óhætt er að segja að sú ferð hafi tekist í alla staði mjög vel.  Veðrið var prýðilegt, sól, en haustsvali og logn. Börnin stóðu sig afskaplega vel, framkoma þeirra til fyrirmyndar og mikil skemmtun fyrir okkur leiðbeinendurna að vera með þeim.  Sjálf sögðu þau eftir ferðina að hún hefði verið “bara fín”, og þykir það góð einkunn.  Stefnt er að sólarhringsferð í Vatnaskóg í byrjun mars.

 

Nú eru afstaðnir 3 fræðslutímar til viðbótar þeim í Kaldárselsferðinni.  Í tíma 2 voru sýndar ýmsar “Jesúmyndir” og rætt um áhrif myndlistar á hugmyndina um Jesú og guðsmyndina. Einnig hve við túlkun hugmyndir okkar um Jesú á misjafnan hátt.  Gerður var stuttlega samanburður á kristinni trú og öðrum trúarbrögðum, en annars verður farið meir í það efni síðar. Í síðasta tíma var rætt um spurninguna: Hvað er trú. Út frá því spunnust umræður um líf og tilveru mannsins, m.a. undir hvaða kringumstæðum reynir á trúna, t.d. í erfiðleikum, áföllum o.s.frv. Síðan var spjallað saman um nauðsyn þess fyrir hvern mann að fá hvíld og geta átt kyrrðarstund af og til. Þar eru íslensk náttúra og kirkjan góðir staðir til þess. 

Í næsta tíma verður byrjað á því að fjalla um Biblíuna.  Sjá “næsti tími”.  (30.09.2009).

 

Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS