Næsti tími
Fundur þriðjudaginn 6. september kl. 17.00 með foreldrum og forráðamönnum fermingarbarna 2012 í safnaðarsal Hallgrímskirkju, gengið inn Eiríksgötumegin.
Næsti tími: Þriðjudagur 2. mars Lesefni bls. 48 – 51 Sakramentin
Næsti tími: Þriðjudagur 19. janúar 2010 kl. 15.00 í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Næsti tími: Þriðjudagur 20. október 2009
Í síðasta tíma vorum við að velta fyrir okkur Postulegu trúarjátningunni. Við lásum hana yfir og veltum því fyrir okkur í hvaða hluta hún skiptist og hvað hún þýðir. Trúarjátningin er eitt af því sem að fermingarbörnin þurfa að kunna fyrir ferminguna. Það væri því gott að lesa hana t,d, yfir á kvöldin áður en þau fara að sofa. Í lok tímans fórum við upp í kirkju og stóðum hjá altarinu og fórum með trúarjátninguna og fleira. Reyndar urðum við fyrir smá ónæði af ferðamönnum sem voru nú ekki alveg til í að missa að tækifærinu að taka myndir af svona fallegu ungu fólki við bænagjörð. En við létum það nú ekki á okkur fá.
Fyrir næsta tíma á að lesa bls. 14 og 15 í í bókinni um sköpunina.
Postullega trúarjátningin
Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottinn vorn, sem getinn er af heilögum anda, fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn, steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum, steig upp til himna, situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trúi á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra, fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf. Amen
6. október kl. 15:00: Lesa kaflann “Bók bókanna.” Athuga hvort þið eigið til Nýja testamentið, eða hvort Biblían er til á heimilinu, sem væri enn betra. Gott er að fletta henni og skoða og kynnast svolítið skipulaginu í þeirri góðu bók. Munið að taka kennslubókina með í næsta tíma – og Nýja testamentið líka eða Biblíuna.
Næsti tími er þriðjudaginn 29. september 2009 kl. 15.00. Staður: Kórkjallari Hallgrímskirkju, gengið inn bakvið.
Fermingarstarfið frá degi til dags.
16. sept. 2009.
Fyrsti almenni fræðsufundurinn var í gær í kórkjallara Hallgrímskirkju. Börnin fengu bækur að láni frá kirkjunni, “Líf með Jesú”. Þau nota hana í vetur sem aðalnámsbók, en eiga síðan að skila henni í vor. Rætt var um trú og líf almennt, m.a. bent á mikiævægi þess að þekkja til helstu trúarbragða, en fyrst og fremst væri mikilvægt að skilja vel sín eigin trúarbrögð, kristna trú. Áhrifa hennar gætti víða í samfélaginu, meðvitað og ómeðvitað, í lögum og siðum. Þau áhrif hefðu reynst góður grunnur í samfélaginu. Viðhorf til trúar væru jafnan misjöfn, en við leituðumst við að leita réttlætis og lifa í samræmi við kærleiksboðorð Jesú Krists.
Kristján Kjartansson, sem er einn af æskulýðsfulltrúum Hallgrímskirkju, kom og sagði börnunum frá æskulýðsstarfi kirkjunnar. Þau væru velkomin og mættu taka með sér gesti.
Þá var farið upp í kirkju, allir söfnuðust saman í kring um stóra altari kirkjunnar, og minnt var á að altarið væri miðpunktur hennar. Þar fer fram máltíð Drottins, þaðan berst boðskapur Guðs og að altarinu beinast bænir safnaðarins. Lesið var úr 103 Davíðssálmi og beðið fyrir starfinu og Faðir vor.
Fundinum lauk með spjalli yfir djúsi og kexi.
Næst.
1. Laugardagur 19. september. Ferð í Kaldársel. Samvera / Fræðsla / Leikir
Mæting kl. 10:00 stundvíslega.
Hafa með Hlý föt og gott skap.
Kirkjan sér um nesti.
Komið heim milli kl. 14 og 14:30
2. Lesa fyrir næsta þriðjudagstíma 22.sept kl. 15:00
Fyrstu 5 blaðsíður í Líf með Jesú. (Munið að taka bókina með!)
Þriðjudaginn 15. september 2009 kl. 15.00 - 16.00
Staður: Kórkjallari Hallgrímskirkju, gengið inn að austanverðu (dyr snúa niður að Barónsstíg)