Upplýsingar
| Viðtöl þriðjud. 5. apríl, við fermingarbörn Hallgrímskirkju vorið 2011 | |||
| kl | Birgir | Jón | Kristján |
| 15.00 | Aðalheiður | Agnes | Andri |
| 15.15 | Anna Sigga | Álfgrímur | Ásgeir |
| 15.30 | Birta | Björk | Bogi |
| 15.45 | Darri | Elín | Guðmundur |
| 16.00 | Guðrún | Gylfi | Halla |
| 16.15 | Haraldur | Högna | Iða |
| 16.30 | Kristrún | Óðinn | Sunna |
| 16.45 | Valentína | Xavier | Rúnar |
| 17.00 | Sóley | ||
Upplýsingar um fermingarfræðslu veturinn 2009 - 2010 og innritun.
Miðvikudaginn 9. september næstkomandi kl. 17.30, verður fundur í Hallgrímskirkju með þeim börnum, sem óska að fermast þar næsta vor, og foreldrum/forráðamönnum þeirra.
Fundarefni:
1. Fjallað verður um fermingarfræðsluna
2. Dagskrá vetrarins lögð fram og kynnt
3. Innritun væntanlegra fermingarbarna (sem ekki eru þá þegar skráð)
4. Samræður.
Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn komi á fundinn ásamt væntanlegu fermingarbarni. Geti börnin eða foreldrarnir ekki mætt af einhverjum ástæðum, þá vinsamlega hafið samband í síma 510 1000, þriðjud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00.
Fermt verður á annan páskadag, 5. apríl, og sunnudaginn eftir páska, 11. apríl, kl. 11 f.h. báða dagana.
Þetta bréf er sent öllum börnum árgangsins 1996, sem búsett eru í Hallgrímssókn til kynningar, án tillits til þess hvort þau eru skráð í þjóðkirkjuna eða ekki. Þetta er gert að fenginni reynslu, þar sem kvartað hefur verið undan því, að vitneskja um fermingarundirbúning í kirkjunni hafi ekki borist öllum börnum á fermingaraldri, sem búa í sókninni.
Ath.: Fermingarstarfið hefst þriðjudaginn 15. september kl. 15.00 í Hallgrímskirkju, kórkjallara (gengið inn um austurdyr). Laugardaginn 19. september er síðan samvera sem við köllum “langur laugardagur” (stutt ferð í Kaldársel, leikir, kynning og fræðsla). Sunnudaginn 20. september er svo gert ráð fyrir þátttöku fjölskyldunnar í messu, þar sem börnin aðstoða við helgihaldið.
Ef frekari upplýsinga er óskað er velkomið að hafa samband við okkur.
Með kærri kveðju,
Jón Dalbú Hróbjartsson / Birgir Ásgeirsson
Prestar Hallgrímskirkju.