Árdegismessur
Alla miðvikudaga kl. 8.00 um morguninn eru árdegismessur í Hallgrímskirkju.
Í messunni er stutt hugleiðing og altarisganga og að henni lokinni er einfaldur morgunverður í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Gert er ráð fyrir að þau sem eiga stutt að fara geti verið komin til vinnu kl. 09.00.
Hér er á ferðinni spennandi nýbreytni í helgihaldi í Hallgrímskirkju. Messurnar eru tilvaldar fyrir sérhvern sem vill taka þátt í helgihaldi í miðri viku og eiga rólega stund áður en haldið er af stað út í ys og þys vinnudagsins.
Að messunum standa Hallgrímskirkja og áhugahópur presta, guðfræðinga og starfsmanna af Biskupsstofu. Fjöldi presta og leikmanna munu koma að þeim.
Hugmyndin að þessum messum er fæddist hjá mörgum sem eiga leið framhjá kirkjunni á leið til vinnu og er vonin sú að hægt verði að búa til áningarstað á virkum degi þar sem maður gengur fram fyrir Guð í miðri vinnuviku og þiggur næringu bæði líkamans og trúarlífsins.
Verið velkomin í Hallgrímskirkju á miðvikudagsmorgnum klukkan 8.