Hallgrímskirkja

 

Klais orgel

Orgel Hallgrímskirkju

Raddskipan

Hallgrímskirkja státar af tveimur orgelum.

Klais orgelið

Við vesturgaflinn gnæfir 72 radda pípuorgel byggt af Johannes Klais Orgelsmiðjunni í Bonn í Þýskalandi. Það var vígt á öðrum sunnudegi í aðventu árið 1992. Það hefur fjögur spilaborð, 72 raddir og 5275 pípur. Sjálft orgelið erum 15 metra hátt og vegur um 25 tonn. Því fylgir færanlegt orgelborð sem er aftarlega norðanmegin í kirkjunni og var tekið í notkun árið 1997.

Þetta orgel er notað við helgihald kirkjunnar auk þess sem það hefur hlotið almenna viðurkenningu sem frábært tónleikahljóðfæri. Tilkoma færanlega orgelborðsins hefur aukið notkunarmöguleika orgelsins verulega, sérstaklega hvar varðar tónleikahald. Um leið er þetta langstærsta orgelið á Íslandi og er rómað meðal organista víða um heim fyrir gæði, fjölbreytt raddval og hversu vel það fellur að rými kirkjunnar.

Frobeniusorgelið

Í norðurskipi kirkjunnar, innst við kórinn, er 10 radda kórorgel byggt af Th. Frobenius og Sønner Orgelbyggeri A/S í Lyngby í Danmörku og vígt í desember 1985. Það er tíu radda, mekanískt, með svelli á báðum spilaborðum. Það leysti af hólmi 14 radda tékkneskt Rieger-Kloss orgel sem upphaflega hafði verið sett upp í kapellu í kórkjallara árið 1956 og flutt í suðurálmu turnsins þegar kapellan var vígð þar árið 1974. Þegar kirkjan var síðan vígð í október 1986 var það flutt þangað sem það er núna og þannig hefur það þjónað kirkjunni síðan, þar af eitt fyrstu sex árið.

 

Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS