Mótettukór
Mótettukór Hallgrímskirkju
Jól með Mótettukór Hallgrímskirkju og Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu
Miðvikudaginn 28. desember kl. 20.00 og fimmtudaginn 29. desember kl. 20.00
Á sínum eftirsóttu jólatónleikum, sem nú eru haldnir í 30. sinn, býður Mótettukórinn áheyrendum sínum upp á hugljúfa tónlist frá ýmsum löndum. Erlendir kórfélagar leggja til jólalög frá sínum heimalöndum, Póllandi, Tékklandi, Hollandi og Þýskalandi og er sungið á móðurmáli þeirra.
Þóra Einarsdóttir bætist nú í röð þeirra fjölmörgu einsöngvara, sem verið hafa gestir Mótettukórsins á jólatónleikum kórsins undanfarin ár.
Björn Steinar Sólbergsson leikur á Klais-orgelið. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Miðaverð 3.900 kr. / listvinir 2.000 kr. / afsláttarverð 3.000 kr.
Tónleikar í tilefni af tónleikaferð kórsins til Þýskalands og Austurríkis 9. - 13. október 2011
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur tónleika nk. sunnudag 2. október kl. 17 í Hallgrímskirkju, í tilefni af tónleikaferð kórsins til Þýskalands og Austurríkis í byrjun október. Tónleikarnir eru á dagskrá Listvinafélags Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Efnisskrá tónleikanna verður sú sama og á þrennum tónleikum kórsins í Passau, Salzburg og Frankfurt dagana 9. - 13. október nk., en síðastnefndu tónleikarnir eru í tengslum við bókasýninguna í Frankfurt, þar sem Ísland er heiðursgestur í ár. Á tónleikunum mun kórinn flytja verk eftir J.S. Bach og E. Whitacre, ásamt efni af geislaplötunni „Ljósið þitt lýsi mér“, sem kom út árið 2009. Á diskinum má heyra íslenska kirkjutónlist; gömul þjóðlög í hefðbundnum eða nýrri útsetningum, sígild lög eftir þekkt tónskáld, Jón Leifs, Þorkel Sigurbjörnsson og fleiri, ásamt nýjum verkum eftir yngri tónskáld sem samin eru við ljóð skálda fyrri alda. Um er því að ræða mikilvæga kynningu á íslenskri tónlistarhefð á meginlandinu, en bókamessan í Frankfurt er sú stærsta og mikilvægasta sinnar tegundar í heiminum og búist er við að hún muni í ár taka á móti 300.000 gestum frá yfir 100 löndum.
Tónleikar Mótettukórsins á bókamessunni verða í Dómkirkjunni í Frankfurt þann 13. október klukkan 20 (sjá hér) en í hinum borgunum í St. Nikola kirkjunni í Passau þann 9. október klukkan 17 og í Ev. Christuskirche í Salzburg 11. október klukkan 19.
Mótettukórinn er nú að hefja sitt 30. starfsár og eru verkefni kórsins eftir ferðina fjölbreytileg og krefjandi. Mótettukórinn heldur m.a. árlega jólatónleika sína þann 28. og 29. desember nk. í Hallgrímskirkju og syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands í tónlistarhúsinu Hörpu á tvennum áskriftartónleikum á næsta ári. Þar flytur hann ásamt S.Í. Messu í c-moll eftir Mozart í mars og Sinfóníu nr. 9 eftir Ludwig van Beethoven í júní á lokatónleikum á heildarflutningi sinfónía Beethovens á fyrsta starfsári S.Í. í Hörpu.
Flétta í Hallgrímskirkju
FLÉTTA er nýtt kór- og hljómsveitarverk eftir Hauk Tómasson samið fyrir tvo kóra Hallgrímskirkju, Mótettukórinn og Schola cantorum og sextán manna kammersveit. Textinn er samsettur úr ljóðum og ljóðabrotum nokkurra íslenskra skálda á ýmsum aldri, frá Snorra Hjartarsyni til Sjón. Flétta fjallar um ægifegurð náttúrunnar, tengsl okkar við hana og ábyrgð okkar á henni. Sex örstutt náttúruljóð eftir Sjón mynda einhvers konar rauðan þráð gegnum verkið, sungin af Schola cantorum og skiptast á við stærri kórkafla sungnum af Mótettukórnum. Ljóðin spanna allt frá lofsöng um vorið og yfir í ljótleika, auðn og eyðileggingu, og tónlistin frá voldugum kórköflum yfir í málmkennt skrap slagverkshljóðfæra. Um leið er verkið ferðalag gegnum árstíðirnar.
Flytjendur er Schola cantorum, Mótettukórs Hallgrímskirkju og Kammersveitar Reykjavíkur. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Listahátíðar í Reykjavík.
Jóhannesarpassían í Hallgrímskirkju

Eitt af meginverkum tónlistarsögunnar, Jóhannesarpassían eftir Johann Sebastian Bach, verður flutt á tónleikum í Hallgrímskirkju í Reykjavík og í Hofi á Akureyri 1.-3. apríl nk. Flytjendur eru Mótettukór Hallgrímskirkju, Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag og glæsilegur hópur ungra íslenskra einsöngvara undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors Hallgrímskirkju.
Johann Sebastian Bach (1685-1750) hefur ekki að ástæðulausu verið nefndur „fimmti guðspjallamaðurinn“. Engu tónskáldi hefur tekist betur en honum að klæða frásagnir Nýja testamentisins af Jesú Kristi í tóna. Jóhannesarpassían var fyrst flutt á föstudaginn langa 1724 í Leipzig í Saxlandi þar sem Bach starfaði sem tónlistarstjóri. Verkið er byggt á frásögn Jóhannesarguðspjalls af síðustu stundunum í lífi Jesú, píslum hans og krossfestingu. Bach málar sögusvið atburðanna á einstaklega áhrifaríkan hátt með mögnuðu tónmáli sínu. Kórinn gegnir lykilhlutverki í dramatískri framvindu frásagnarinnar og í þessu verki er að finna marga af glæsilegustu og áhrifamestu kórköflum tónlistarsögunnar. En Bach leitar líka djúpt undir viðburðaríkt yfirborð þessarar mikilvægustu frásagnar kristinnar hefðar. Undurfagrar aríur og fínlega dregnar sálmaútsetningar passíunnar eru óviðjafnanlegar biðstöðvar frásagnarinnar þar sem einsöngvarar og kór hugleiða hina hryggilegu atburði. Þessi tónlist talar á jafn afdráttarlausan, innilegan og uppbyggilegan hátt til mannssálarinnar nú eins og þegar hún hljómaði fyrst.
Mótettukór Hallgrímskirkju ræðst í þriðja sinn í það stórvirki að flytja Jóhannesarpassíuna og nú í fyrsta skipti ásamt hinni rómuðu Alþjóðlegu barokksveit í Den Haag, sem hefur margsinnis komið hingað til lands á undanförnum árum og flutt stórvirki barokktímans með kórum Hallgrímskirkju. Sveitin er skipuð tónlistarfólki sem hefur stundað nám við barokkdeild Konunglega tónlistarháskólans í Den Haag í Hollandi, eina mikilvægustu miðstöð rannsókna og kennslu á sviði barokktónlistar í heiminum. Samvinna sveitarinnar og Harðar Áskelssonar hefur vakið verðskuldaða athygli enda brautryðjendastarf hérlendis í tónlistarflutningi í hinum svokallaða upprunastíl þar sem þess er gætt að nálgast tónlist liðinna alda út frá forsendum hennar sjálfrar, eðli og inntaki og í ljósi staðgóðrar þekkingar á túlkunarvenjum hvers tíma fyrir sig.
Einsöngvarar á tónleikunum eru allir í hópi fremstu söngvara landsins af yngri kynslóðinni. Hinn 23 ára gamli tenór Benedikt Kristjánsson tekst í fyrsta sinn á við hið afar kröfuharða hlutverki guðspjallamanns, auk þess að syngja tenóraríur verksins. Andri Björn Róbertsson bassabaríton, sem þreytti nýverið frumraun sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands, túlkar hlutverk Jesú. Aðrir einsöngvarar eru Þóra Einarsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzósópran og Ágúst Ólafsson baríton.

Jóhannesarpassían verður flutt í Hallgrímskirkju föstudaginn 1. apríl kl. 20 og laugardaginn 2. apríl kl. 17 og í Hofi á Akureyrisunnudaginn 3. apríl kl. 17. Miðaverð er kr. 4.900,- (3.900,-) og miðasala er í Hallgrímskirkju, á midi.isog hjá Menningarhúsinu Hofi.
Tónleikarnir á Akureyri eru haldnir í tilefni af því að þann 5. apríl nk. verða 100 ár liðin frá fæðingu Áskels Jónssonar, föður Harðar Áskelssonar, en hann vann ómetanlegt uppbyggingarstarf sem organisti, kórstjóri og tónlistarkennari á Akureyri um áratuga skeið.
