Hallgrímskirkja

 

Orgelsumar

Alþjóðlegt orgelsumar 2010 hefst 5. júní. Dagskrá auglýst síðar.

 

Alþjóðlegt orgelsumar 2009

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju er nú haldið í 17. sinn.
Tónleikaröðin er haldin undir merkjum Listvinafélags Hallgrímskirkju og
hefur verið árlegur viðburður frá því að Klais-orgel kirkjunnar var vígt
1992.

Alþjóðlegt orgelsumar og Klais-orgel Hallgrímskirkju hafa ávallt laðað að
sér framúrskarandi listamenn og svo er einnig í sumar. Organista, sem koma
víða að og flytja okkur fjölbreytta orgeltónlist, bæði frá heimalandi sínu
og einnig þekktar orgelperlur. Meðal flytjenda má nefna Andreas Sieling,
dómorganista í Berlín, Roger Sayer, dómorganista í Rochester í Englandi og
Susan Landale sem er meðal virtustu konsertorganista í heiminum í dag.

Að þessu sinni er tónskáldið Felix Mendelssohn-Bartholdy í öndvegi.
Mendelssohn fæddist í Hamborg í Þýskalandi 1809 og eru því 200 ár liðin frá
fæðingu hans og er þess minnst víða um heim. Í Hallgrímskirkju verða öll
helstu verk hans fyrir orgel flutt á Alþjóðlega orgelsumrinu 2009.

Orgelhátíðin hefst sunnudaginn 28. júní með opnunartónleikum Björns Steinars
Sólbergssonar, organista í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir verða svo haldnir á
hverjum sunnudegi kl. 17 til og með 16. ágúst. Þess má geta að organistar
Alþjóðlega orgelsumarsins taka þátt í helgihaldinu í Hallgrímskirkju með því
að leika eftirspil í messu sunnudagsins.

Aðgangseyrir er kr. 1.500.

Nánari upplýsingar fást á heimasíðu Listvinafélags Hallgrímskirkju,

www.listvinafelag.is

 

Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · WP · Kerfi RSS