Hallgrímskirkja

 

Messa í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 22. ágúst, sem er tólfti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi eftir messu að venju. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 22/8 2010

Sálmafoss á Menningarnótt

Sálmafoss 2010 er samstarfsverkefni Hallgrímskirkju, Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og Kórahátíðarinnar Nordic-Baltic. Frá klukkan 14.00 til 18.00 koma fram átta kórar, fulltrúar þeirra erlendu landa sem aðild eiga að hátíðinni. Hver kór flytur eigin dagskrá og kynnir einn sálm frá sínu landi, sem síðan er sunginn á íslensku af öllum viðstöddum. Þá leikur Áskell Harðarson eigin tónsmíðar á klukknaspil Hallgrímskirkju á klukkutíma fresti kl. 14.00 til 18.00.

Dagskrá Sálmafoss er eftirfarandi: Kl. 14.00 - Kór Sunnmöre hátíðarinnar í Noregi. Stjórnandi Svein Eiksund. Kl. 14.30 - Havnarkórið frá Færeyjum, stjórnandi Ólavur Hátún. Kl. 15.00 - Vyturys, blandaður kór menningarmiðstöðvar Ukmerge héraðs í Litháen. Stjórnandi Antanas Pocius. Kl. 15.30 - Vallis-kórinn frá Finnlandi. Stjórnandi Soili Autio. Kl. 16.00 - Tartu unglingakór frá Eistlandi. Stjórnandi Riho Leppoja. Kl. 16.30 - Folkpust frá Svíþjóð. Stjórnandi Frekrik Bergh. Kl. 17.00 - Ogre frá Lettlandi. Stjórnandi Janis Zirnis. Kl. 17.30 - Concert Clemens frá Danmörku. Stjórnandi Carsten Seyer Hansen. Kl. 18.00 - Sálmaspuni I: Sigurður Flosason saxófónn og Gunnar Gunnarsson orgel. Kl. 18.30 - Kór frá Tasiilaq (Anmassalik) Grænlandi. Kl. 19.00 - Sálmaspuni II: Sigurður Flosason saxófónn og Gunnar Gunnarsson orgel. Kl. 19.30 - Orgelgleði: Björn Steinar Sólbergsson orgel. Kl. 20.00 - Sálmaspuni III: Sigurður Flosason saxófónn og Gunnar Gunnarsson orgel. Kl. 20.30 - Bæn fyrir friði. Helgistund með séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Umsjónarmenn og kynnar sálmafoss eru sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og sr. Kristján Valur Ingólfsson.

Verið velkomin í Hallgrímskirkju á Menningarnótt.

Birna Hjaltadóttir, 21/8 2010

Nordic-Baltic í Hallgrímskirkju

Kórahátíðin Nordic-Baltic er haldin dagana 17. - 21. ágúst í Reykjavík. Í Hallgrímskirkju eru tónleikar kl. 12.30, þar sem nokkrir kórar munu syngja og aðrir tónleikar kl. 20.00. Aðgangseyrir í hádeginu er kr. 1000.- og um kvöldið kr. 1500.-. Sjá nánar á nordic-baltic.is.

Birna Hjaltadóttir, 19/8 2010

Árdegismessa og norrænt kóramót í Hallgrímskirkju

Á morgun, miðvikudaginn 18. ágúst, er morgunmessa að venju kl. 08.00. Séra María Ágústsdóttir þjónar fyrir altari, séra Kristján Valur Ingólfsson flytur hugvekju og leikmenn sjá um aðra messuliði. Á eftir er morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir innilega velkomnir.

Kórahátíðin Nordic-Baltic fer fram í Reykjavík dagana 17. - 21. ágúst 2010.  Í Hallgrímskirkju koma fram átta kórar frá átta löndum og flytur hver kór eigin dagskrá. Á morgun munu kórarnir syngja í Hallgrímskirkju kl. 12.30 og svo aftur kl. 20.00. Kórarnir munu vera í Hallgrímskirkju aftur næstkomandi föstudag og á Menningarnótt, sem er á laugardaginn kemur. Framkvæmdastjóri kórahátíðarinnar er Margrét Bóasdóttir sópransöngkona og kórstjórnandi.

Birna Hjaltadóttir, 17/8 2010

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 15. ágúst, sem er ellefti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Leonard Ashford. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Sögustund er fyrir börnin og kaffisopi eftir messu að venju.

Birna Hjaltadóttir, 13/8 2010

Alþjóðlegt orgelsumar - síðasta tónleikahelgi

Síðustu tónleikar Alþjóðlegs orgelsumars eru núna um helgina 14. og 15. ágúst. Á laugardag kl. 12.00 og sunnudag kl. 17.00 mun Halgeir Schiager, organisti við Sofienberg kirkjuna í Osló leika á Klais orgel Hallgrímskirkju verk eftir Johann Gottlob Schneider, Gustav Merkel, Petr Eben og Norðmennina Leif Solberg og Kjell Mörk Karlsen. Aðgangseyrir er kr. 1000.- á laugardag og kr. 1.500 á sunnudag.

Halgeir Schiager er einn fremsti orgelleikari Norðmanna. Hann lærði meðal annars hjá Franz Lehrndorfer í München og Daniel Roth i Strassborg. Halgeir hefur haldið tónleika víða í Evrópu, þar með talið á Alþjóðlegu orgelsumri í Hallgrímskirkju, og leikið inn á upptökur í Þýskalandi og Noregi.

Birna Hjaltadóttir, 12/8 2010

Alþjóðlegt orgelsumar

Á morgun, fimmtudaginn 12. ágúst, eru tónleikar í hádeginu kl. 12.00. Ágúst Ingi Ágústsson læknir og organisti, búsettur í Danmörku, leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju. Aðgangseyrir er kr. 1.000.-. Þetta eru síðustu fimmtudagstónleikar Alþjóðlegs orgelsumars.

Birna Hjaltadóttir, 11/8 2010

Árdegismessa og tónleikar Schola cantorum

Á morgun, miðvikudaginn 11. ágúst, er morgunmessa í Hallgrímskirkju að venju kl. 08.00.  Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn, sr. Ása Björk Ólafsdóttir er forsöngvari og Sigrún V. Ásgeirsdóttir aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir messunni, sem er um það bil 40 mínútur, er morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Vilhjálmur Grímsson sér um kaffið og töfrar fram ýmsar tegundir af brauði og áleggi.  Allir innilega velkomnir.

Hádegistónleikar Schola cantorum eru kl. 12.00 - 12.30.  Á efnisskránni er fögur kirkjutónlist, meðal annars tengd sálmum Hallgríms Péturssonar. Aðgangseyrir við innganginn kr. 1.000.-. Verið velkomin í Hallgrímskirkju.

Birna Hjaltadóttir, 10/8 2010

Helgin í Hallgrímskirkju 7. og 8. ágúst 2010

Kári Þormar, nýráðinn organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík, leikur á næstsíðustu helgartónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju laugardaginn 7. ágúst kl. 12.00 - 12.30. Á efnisskránni eru verk eftir Dubois, Mozart, J.S. Bach og Widor. Síðari tónleikarnir eru sunnudaginn 8. ágúst kl. 17.00 - 18.00 og mun Kári leika verk eftir J.S. Bach, William Boyce, Karg-Elert, Þorkel Sigurbjörnsson og Widor. Miðaverð er kr. 1000 á laugardagstónleikana og kr. 1.500 á sunnudagstónleikana.

Á sunnudaginn, sem er tíundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Kári Þormar, dómorganisti. Fermd verður Rebekka Ingibjartsdóttir, sem einnig leikur á fiðlu. Sögustund er fyrir börnin.  Að lokinni messu er opnun nýrrar sýningar í forkirkjunni. Þetta er önnur sýningin í röðinni “Kristin minni”, sem Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarkona hefur umsjón með í Hallgrímskirkju. Sýningin ber heitið “Upplausn” og höfundur hennar er Hulda Stefánsdóttir myndlistarkona. Þetta er fyrsta sýning Huldu á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Á eftir er boðið upp á kaffisopa í safnaðarsalnum. Allir innilega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 6/8 2010

Tónleikar í Hallgrímskirkju föstudaginn 6. ágúst 2010

Á morgun, föstudaginn 6. ágúst kl. 16.00, eru tónleikar í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Hildur Heimisdóttir frumflytur fjögur einleiksverk fyrir selló eftir ung íslensk tónskáld. Tónskáldin sjálf munu halda stutta kynningu á verkum sínum og fjalla um tilurð þeirra og fleira. Verkin eru: “Svít-A” eftir Árna Guðjónsson, “Næstum því einn dagur” eftir Erlu Axelsdóttur, “Hrif” eftir Hauk Þór Harðarson og “Hildarleikur” eftir Hafdísi Bjarnadóttur. Þess má geta að öll verkin eru samin sérstaklega fyrir Hildi. Hún mun halda út til náms nokkrum dögum eftir þennan viðburð. Aðgangur er ókeypis.

Birna Hjaltadóttir, 5/8 2010

Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 - 17.00.

Skráning fermingarbarna fer fram í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 7. september kl. 17.00 í safnaðarsal kirkjunnar. Sjá nánar undir liðnum "Ferming" ofar á þessari síðu.


Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.

Listavinafélagið

Safnaðarblað

Turninn
Turninn er opinn alla daga frá 09.00 - 17.00. Verð kr. 500 fyrir fullorðna og kr. 100 fyrir skólabörn.
The tower is open from 9 am to 5 pm every day. Entry 500 ISK for adults and ISK 100 for schoolchildren.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund. Frá september til maí.

Dagskrá ...