Hallgrímskirkja

 

Kyrrðarstund í hádegi og Hallgrímsmessa að kvöldi

Á morgun, fimmtudaginn 27. október, er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur, íhugun og bæn. Á eftir stundinni er léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.

Um kvöldið kl. 20.00 er Hallgrímsmessa, hátíðarmessa.  Á þessu hausti eru 25 ár liðin frá vígslu Hallgrímskirkju og er þess minnst með hátíðarmessunni á morgun 27. október, en þessi dagur er dánardagur Hallgríms Péturssonar og hefur þess gjarnan verið minnst með messugjörð. Þetta er 337. ártíð sálmaskáldsins. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og Magneu Sverrisdóttur djákna. Messuþjónar aðstoða. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Eftir messuna er boðið upp á kaffi og konfekt. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 26/10 2011

Árdegismessa á miðvikudag og Hallgrímsmessa á fimmtudag

Hallgrímskirkja var vígð 26. október 1986 og á því 25 ára vígsluafmæli á morgun miðvikudaginn 26. október. Morgunmessa er að venju kl. 08.00, séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, flytur hugvekju og velur sálmana, Hannes Guðrúnarson fer með bæn og Guðlaugur Leósson aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir messunni er afmæliskaffi í safnaðarsalnum í umsjá Dóru Þorkelsdóttur og Kristjáns Þorgeirssonar. Allir hjartanlega velkomnir.

Á fimmtudaginn 27. október er Hallgrímsmessa kl. 20.00.

Birna Hjaltadóttir, 25/10 2011

Fræðslumorgunn, messa og barnastarf í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 23. október, sem er átjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er fræðslumorgunn í safnaðarheimili Hallgrímskirkju kl. 10.00. Dr. Sigurður Pálsson fyrrverandi sóknarprestur í Hallgrímskirkju flytur erindi sem hann nefnir “Grautargerð eða fegurð” - þættir úr byggingarsögu Hallgrímskirkju. Á eftir erindinu er kaffisopi og spjall. Kl. 11.00 er messa og barnastarf. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Sigurði Pálssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 20/10 2011

Kyrrðarstund

Á morgun, fimmtudaginn 20. október, er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur, íhugun og bæn. Á eftir stundinni er léttur hádegisverður borinn fram í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 19/10 2011

Árdegismessa

Á morgun, miðvikudaginn 19. október, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari og flytur hugvekju, Sigrún V. Ásgeirsdóttir fer með bæn. Söfnuðurinn aðstoðar við aðra messuliði. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 18/10 2011

Fræðslumorgunn, messa og barnastarf í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 16. október er fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju kl. 10:00.  Magnea Sverrisdóttir djákni í Hallgrímskirkju flytur erindi sem er kynning á starfi Lútherska heimssambandsins.  Kaffisopi og spjall á eftir.  Kl. 11:00 er messa og barnastarf.  Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari.  Messuþjónar aðstoða.  Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn.  Organisti er Hörður Áskelsson.  Hrafnhildur Þórólfsdóttir nemandi í Söngskólanum Reykjavík syngur í messunni.  Kirkjukaffi eftir messu, allir hjartanlega velkomnir.

Jónanna Björnsdóttir, 13/10 2011

Kyrrðarstund í Hallgrímskirkju

Á morgun fimmtudaginn 13. október er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12:00.  Orgelleikur, íhugun og bæn.  Á eftir stundinni er léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar.  Allir hjartanlega velkomnir.

Jónanna Björnsdóttir, 12/10 2011

Árdegismessa í Hallgrímskirkju

Á miðvikudögum allt árið um kring er árdegismessa í Hallgrímskirkju kl. 8:00.  Á eftir messu er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar.  Allir hjartanlega velkomnir.

Jónanna Björnsdóttir, 11/10 2011

Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju laugardaginn 8. október

Á laugardaginn 8. október eru orgeltónleikar kl. 12.00 á hádegi - bænasálmar. Björn Steinar Sólbergsson organisti leikur á Klais-orgelið. Á efnisskránni eru verk eftir Johann Sebastian Bach og Sigfried Karg-Elert. Ókeypis aðgangur en frjáls framlög þegin til styrktar Listvinafélagi Hallgrímskirkju.

Birna Hjaltadóttir, 5/10 2011

Fræðslumorgunn, messa og barnastarf í Hallgrímskirkju - Drengjakór Reykjavíkur og Taborkórinn frá Færeyjum syngja í messunni

Á sunnudaginn 9. október, sem er sextándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju kl. 10.00. Séra Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir flytur erindi sem hún nefnir “Borgarkirkja verður til”. Kaffisopi og spjall á eftir. Kl. 11.00 er messa og barnastarf. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju leiðir messusönginn undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Í messunni syngur Taborkórinn frá Toftir á Eysturoy í Færeyjum. Stjórnandi er Jónhild Djurhuus. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 5/10 2011

Opnunartími
Opnunartímar: Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00. The church is open every day from 9 am to 5 pm.

CREDO: Myndlistarsýning Elínar Eddu Árnadóttur og Sverris Guðjónssonar í anddyri Hallgrímskirkju til 15. febrúar næstkomandi.

Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

 

Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS