Sunnudaginn 7. desember, sem er annar sunnudagur í aðventu, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur og messuþjónum. Karlakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Kl. 17.00 eru jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar Áskelssonar. Gestir þeirra eru Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju, stjórnandi Friðrik S. Kristinsson. Undirleikari á orgel er Björn Steinar Sólbergsson. Miðasala í Hallgrímskirkju frá 09.00 til 17.00. Miðaverð kr. 2.500.-.
Birna Hjaltadóttir, 4/12 2008
Jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju eru endurteknir miðvikudaginn 3. desember kl. 20.00. Stjórnandi kórsins er Hörður Áskelsson. Gestir jólatónleikanna eru Drengjakór Reykjavíkur, stjórnandi Friðrik S. Kristinsson. Orgelleikari er Björn Steinar Sólbergsson. Aðgangseyrir er kr. 2.500. Listvinir kr. 1.500. Þriðju tónleikarnir eru sunnudaginn 7. desember kl 17.00. Miðasala í Hallgrímskirkju alla daga frá 09.00 til 15.00 og við innganginn.
Birna Hjaltadóttir, 1/12 2008
Laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00 er jólafundur Kvenfélags Hallgrímskirkju og Opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Ingibjörg Aldís, sópransöngkona mun syngja jólasöngva og vinsælar aríur við undirleik föður síns, Ólafs Hjaltested, sem leikur á píanó og harmónikku. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 26/11 2008
Sunnudagurinn 30. nóvember, sem er fyrsti sunnudagur kirkjuársins og jafnframt fyrsti sunnudagur í aðventu, hefst með hátíðarmessu kl. 11.00. Biskup Íslands prédikar og með honum þjóna prestar Hallgrímskirkju, messuþjónar og fulltrúar Hjálparstarfs kirkjunnar. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Á eftir messunni er opnun aðventusýningar Listvinafélags Hallgrímskirkju í forkirkjunni. Sigurlaug Jóhannesdóttir sýnir ný verk tengd íslenskri náttúru og heitir sýning hennar “Smáblóm”. Ensk messa er kl. 14.00 í umsjá séra Bjarna Þórs Bjarnasonar. Kaffi og meðlæti eftir messu. Kl. 20.00 eru svo jólatónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju, sem allir hafa beðið eftir með eftirvæntingu. Gestir Mótettukórsins að þessu sinni eru Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju. Stjórnandi Mótettukórsins er Hörður Áskelsson og stjórnandi Drengjakórsins er Friðrik S. Kristinsson. Organisti á tónleikunum er Björn Steinar Sólbergsson. Aðgangseyrir á tónleikana er kr. 2.500/listvinir kr. 1.500.
Birna Hjaltadóttir, 26/11 2008
Listvinafélag og Mótettukór Hallgrímskirkju bjóða vinum, gestum og gangandi til listastundar næstkomandi laugardag, 22. nóvember, á degi heilagrar Sesselju, verndardýrlings tónlistarinnar, kl. 13.30 í Hallgrímskirkju. Dagskráin er þríþætt: Kynning í tali og tónum á óratoríunni CECILIA eftir Áskel Másson, kynning á nýjum geisladiski Mótettukórs Hallgrímskirkju og dagskrá 27. starfsárs Listvinafélags Hallgrímskirkju. Að dagskrá lokinni er boðið upp á kaffi og kökur í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir og aðgangur ókeypis. Sýningu Páls á Húsafelli og Thors Vilhjálmssonar í forkirkju Hallgrímskirkju, sem staðið hefur síðan í september, lýkur í næstu viku.
Birna Hjaltadóttir, 19/11 2008
Á sunnudaginn 23. nóvember, sem er síðasti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum. Forsöngvari er Margrét Sigurðardóttir, sem einnig syngur einsöng í messunni. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Kaffisopi eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 19/11 2008
Illugi Gunnarsson, alþingismaður, er gestur á Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju sunnudaginn 16. nóvember. Illugi hefur kynnt sér guðfræði siðbreytingaraldarinnar í Evrópu og mun í þessu erindi tengja þær hugsanir við kirkju, trú og stjórnmál í nútímanum. Hann mun m.a. leitast við að svara spurningunni um á hvern hátt kristin trú geti skipt stjórnmálamenn máli, ekki síst í ljósi þeirra atburða sem orðið hafa í íslensku þjóðfélagi. Fræðslumorguninn hefst kl. 10.00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju.
Birna Hjaltadóttir, 13/11 2008
Sunnudagurinn 16. nóvember er næstsíðasti sunnudagur eftir þrenningarhátíð. Í Hallgrímskirkju er mikið um dýrðir á þessum sunnudegi. Þar mun Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngja í messunni undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Hörður Áskelsson. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Fermingarbörn og messuþjónar aðstoða. Rósa Árnadóttir sér um barnastarfið. Messan hefst kl. 11.00. Kaffisopi á eftir að venju.
Birna Hjaltadóttir, 13/11 2008
< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Fjöldamörg börn og ungmenni sækja uppbyggilegt starf á vegum Hallgrímssafnaðar, allt frá ungbörnum á foreldramorgnum og sunnudagaskólabörnum, börnum í 6-9 ára og 10-12 ára starfinu til unglinga í fermingarbarnahópnum og æskulýðsstarfinu, að ógleymdum stúlkum og drengjum í kórastarfi kirkjunnar.
Nú viljum við sem stöndum að þessu starfi bjóða ykkur, foreldrunum, til samveru í suðursal Hallgrímskirkju fimmtudaginn 13. nóvember kl. 20-21.30.
Samtalið verður í brennidepli. Sr. Birgir Ásgeirsson fjallar um hvernig við ræðum við börnin okkar þegar erfiðleikar steðja að og sr. María Ágústsdóttir flytur stuttan pistil um hlutverk samræðunnar í trúaruppeldi barnanna. Að því búnu verður gefinn tími til að spjalla saman yfir kaffisopa.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson mun síðan bjóða fólki til kirkju þar sem þeir Hannes Guðrúnarson, gítarleikari, skapa uppbyggilegt andrúmsloft kyrrðar og bænar. Þau sem hafa umsjón með barna- og æskulýðsstarfinu verða einnig á staðnum.
Verið velkomin í suðursal Hallgrímskirkju fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl. 20-21.30.
Prestar og starfsfólk í barna- og æskulýðsstarfi Hallgrímskirkju
Birna Hjaltadóttir, 12/11 2008
Sunnudagur 9. nóvember í Hallgrímskirkju hefst á fræðslumorgni undir heitinu “Biblían og íslensk menning”. Óhætt er að fullyrða, að Biblía kristinna manna hafi haft veruleg áhrif á íslenska menningarsögu. Í þessu erindi dr. Kristins Ólasonar, rektors í Skálholti, verða skoðuð nokkur dæmi um slík áhrif út frá tilteknum textum. Þá verður gerð tilraun til að svara spurningunni um það hvort Biblían eigi erindi til nútímafólks. Allir eru velkomnir á skemmtilegt erindi, sem hefst kl. 10.00 og lýkur rétt fyrir messu kristniboðsdagsins, sem hefst kl. 11.00. Guðlaugur Gunnarsson, kristniboði prédikar. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari ásamt séra Maríu Ágústsdóttur og messuþjónum. Hamrahlíðarkórinn syngur ásamt kór Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. Organisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfinu hefur Rósa Árnadóttir.
Birna Hjaltadóttir, 5/11 2008