Hallgrímskirkja

 

Sunnudagur í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 15. júní, sem er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Kaffisopi eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 12/6 2008

Messa sunnudagsins

Á sunnudaginn 8. júní, sem er þriðji sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Samskot þessa sunnudags renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaffisopi á eftir messunni að venju.

Birna Hjaltadóttir, 5/6 2008

Sumarmorgunn í Hallgrímskirkju

“Nú heilsar vorsins blíði blær og brosir himinn, land og sær, allt lofar ljósið bjarta. Ó syng af gleði sála mín, lát sumar Drottins ná til þín og lífga hug og hjarta.” Þannig byrjar sumarsálmur nr. 718 í sálmabók íslensku kirkjunnar. Textinn er eftir Sigurbjörn Einarsson, biskup. Nú er sumarið komið með ljós sitt og hlýju og við fyllumst fögnuði yfir sköpunarverki Drottins. Við heilsum nýjum degi með árdegismessu í Hallgrímskirkju. Alla miðvikudaga, allt árið um kring er messa kl. 08.00. Á morgun, 4. júní, þjónar sr. Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Grétar Einarsson flytur hugvekju og Halla Kristinsdóttir, 11 ára, fer með bæn. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 3/6 2008

Fyrirbænaguðsþjónusta

Í 30 ár á þriðjudögum hafa fyrirbænaguðsþjónustur/messur farið fram í kapellu Hallgrímskirkju. Aldrei hefur nein athöfn fallið úr nema ef daginn hefur borið upp á jóladag eða nýársdag. Athöfnin tekur hálfa klukkustund; byrjar kl. 10.30 og endar kl. 11.00. Annan hvorn þriðjudag er altarisganga. Í athöfninni er beðið fyrir sjúkum og er stuðst við lista yfir nöfn þeirra sem beðið er fyrir. Starfsfólk Hallgrímskirkju tekur við bænarefni og kemur því áfram til prestanna. Athafnir þessar eru öllum opnar.

Birna Hjaltadóttir, 2/6 2008

Messa sunnudagsins

Sunnudagurinn 1. júní er annar sunnudagur eftir þrenningarhátíð og jafnframt Sjómannadagurinn. Í Hallgrímskirkju er messa kl. 11.00. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund er fyrir börnin í umsjá Rósu Árnadóttur. Að venju er boðið upp á kaffisopa í safnaðarsalnum að messu lokinni.

Birna Hjaltadóttir, 29/5 2008

Árdegismessa

“Nú skrúði grænu skrýðist fold…” segir í sænskum sálmi, sem biskupinn okkar Karl Sigurbjörnsson hefur samið texta við. Landið okkar skrýðist grænu, grænn er litur vonarinnar og nú eftir þrenningarhátíð er litur kirkjunnar grænn. Það er yndislegt að byrja daginn á samveru í Hallgrímskirkju á miðvikudagsmorgnum áður en vinnudagurinn hefst. Á morgun, miðvikudaginn 28. maí kl. 08.00 er árdegismessa að venju. Séra Ása Björk Ólafsdóttir þjónar fyrir altari, sr. Birgir Ásgeirsson flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn og sr. Kristján Valur Ingólfsson er forsöngvari. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 27/5 2008

Fyrirbænamessa í Hallgrímskirkju

Á morgun, þriðjudaginn 27. maí, er fyrirbænamessa í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Athöfnin stendur yfir í hálfa klukkustund. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 26/5 2008

140 ára fæðingarafmæli sr. Friðriks Friðrikssonar - Hátíðardagskrá 25. maí 2008

Á sunnudaginn 25. maí, sem er fyrsti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er 140 ára fæðingarafmælis sr. Friðriks Friðrikssonar minnst. Hátíðin hefst með stuttri athöfn kl. 10.00 við styttu sr. Friðriks í Lækjargötu, þar sem lagður verður blómsveigur til minningar um einn merkasta æskulýðsleiðtoga 20. aldarinnar. Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, flytur bæn og blessun. Félagsfólk þeirra félaga sem sr. Friðrik stofnaði er hvatt til að mæta og taka þátt í athöfninni, sem og allir þeir sem vilja heiðra minningu sr. Friðriks. Kl. 11.00 er guðsþjónusta í Hallgrímskirkju tileinkuð minningu sr. Friðriks. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur og fyrrum formaður KFUM þjónar fyrir altari ásamt sr. Guðna Má Harðarsyni. Dr. Sigurður Pálsson, sem einnig er fyrrum formaður KFUM prédikar með áherslu á líf og starf sr. Friðriks. Í messunni verða sungnir sálmar með textum sr. Friðriks. Félagsfólk í KFUM og KFUK, Skátunum, Val og Haukum tekur þátt í guðsþjónustunni. Karlakórinn Fóstbræður syngur lög eftir sr. Friðrik. Kl. 14.00 er ensk messa í Hallgrímskirkju. Sr. Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Forsöngvari er Jónína Kristinsdóttir.

Birna Hjaltadóttir, 22/5 2008

Árdegismessa í Hallgrímskirkju

Á morgun, miðvikudaginn 21. maí, er árdegismessa kl. 08.00. Sólin skín og fuglarnir syngja Skaparanum lof og dýrð. Það gerum við einnig sem getum byrjað daginn í kór Hallgrímskirkju á fallegum morgni í maí. Sr. Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari, sr. María Ágústsdóttir flytur hugvekju og Birna G. Hjaltadóttir fer með bæn. Forsöngvari er Grétar Einarsson. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 20/5 2008

Fyrirbænaguðsþjónusta

Á þriðjudögum er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 19/5 2008

Opnunartími
Opnunartímar: Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00. The church is open every day from 9 am to 5 pm.

CREDO: Myndlistarsýning Elínar Eddu Árnadóttur og Sverris Guðjónssonar í anddyri Hallgrímskirkju til 15. febrúar næstkomandi.

Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

 

Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS