Hallgrímskirkja

 

Árdegismessa

Árdegismessur hafa verið haldnar hvern miðvikudag allt árið um kring í Hallgrímskirkju í fimm ár. Myndast hefur fastur kjarni sem sækir messurnar, en allir eru velkomnir og ávallt bætast fleiri í hópinn. Leikmannaþjónusta er rík með flutningi ritningarlestrar, hugleiðingar og bænar, auk forsöngs og aðstoðar við útdeilingu. Nokkrir prestar skipta á milli sín helgiþjónustunni og er þessu fólki öllu ljúft að leggja sitt af mörkum til þess einstaka samfélags sem árdegismessurnar eru. Þá má ekki gleyma morgunverðinum sem er einnig undirbúinn í sjálfboðavinnu og leggur góðan grunn að góðum degi að aflokinni messunni. Messan er í kórkjallara Hallgrímskirkju og stendur yfir í um það bil 40 mínútur og byrjar kl. 08.00. Á morgun, miðvikudaginn 24. september, þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Árni Svanur Daníelsson flytur hugvekju, Birna Gunnarsdóttir fer með bæn, sr. Jakob Hjálmarsson er forsöngvari og Vilhjálmur Grímsson aðstoðar við altarisgönguna. Morgunverðurinn er í umsjá Þorsteins Guðlaugssonar og Birnu Gunnarsdóttur. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 23/9 2008

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 21. september, sem er átjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum. Koncertforeningens kor frá Kaupmannahöfn syngur í messunni undir stjórn Steen Lindholm. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 18/9 2008

Útför - Minningarorð

Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup 6. september 2008 í Hallgrímskirkju.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 18/9 2008

Haustferð Kvenfélags Hallgrímskirkju

Skráning í haustferð Kvenfélags Hallgrímskirkju er hjá kirkjuvörðum í síma 510 1017 og hjá Sesselju Ó. Jónsdóttur í síma 552 4572 og 663 4572. Farið verður á miðvikudaginn 17. september kl. 13.00 frá Hallgrímskirkju.

Birna Hjaltadóttir, 13/9 2008

Helgin í Hallgrímskirkju

Laugardaginn 13. september kl. 17.00 er opnun sýningar Páls á Húsafelli: Heilög Sesselja. Páll Guðmundsson á Húsafelli sýnir höggmyndir, bergþrykk og svellþrykk í forkirkju Hallgrímskirkju. Sjá nánar hér á forsíðu til hægri undir “Listvinafélag”. Á sunnudaginn 14. september, sem er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni og séra Maríu Ágústsdóttur. Messuþjónar og fermingarbörn aðstoða í messunni. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Rósu Árnadóttur. Kaffisopi eftir messu að venju.

Birna Hjaltadóttir, 11/9 2008

Kyrrðarstundir í Hallgrímskirkju

Kyrrðarstundir sem haldnar voru á fimmtudögum í hádeginu í Hallgrímskirkju falla niður um óákveðinn tíma vegna múrbrots á turni kirkjunnar.

Birna Hjaltadóttir, 10/9 2008

Sigurbjörn Einarsson

Kveðja frá Hallgrímskirkju

“Lof sé þér, Guð, þín líkn ei þver,

líkn allrar gæsku, dýrð sé þér.

Lof þér, sem veitir hjálp og hlíf,

himneska svölun, eilíft líf”. (SE).

Líkn Guðs og gæska. Honum sé dýrð. Þannig talaði Sigurbjörn. Við erum þakklát Sigurbirni Einarssyni, biskupi, fyrir líf hans og boðskap. Við erum þakklát Guði að vekja með honum…

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 5/9 2008

Upphaf vetrarstarfs í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 7. september, sem er sextándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Þessi sunnudagur markar upphaf vetrarstarfs í Hallgrímskirkju. Opið hús fyrir aldraða hefst á þriðjudag og Mótettukórinn byrjar einnig æfingar eftir sumarhlé. Í messu sunnudagsins prédikar séra Birgir Ásgeirsson og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kaffisopi eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 4/9 2008

Árdegismessa í Hallgrímskirkju

Árdegismessurnar á miðvikudögum hafa verið færðar niður í kórkjallara vegna byggingaframkvæmda á turni kirkjunnar. Á morgun, miðvikudaginn 3. september, er messa að venju kl. 08.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, sr. Ása Björk Ólafsdóttir flytur hugvekju og er jafnframt forsöngvari og Vilhjálmur Grímsson fer með bæn. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsal Hallgrímskirkju í umsjá Sigrúnar V. Ásgeirsdóttur. Allir velkomnir. Gengið inn að austanverðu (dyr snúa að Barónsstíg).

Birna Hjaltadóttir, 2/9 2008

Messa í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 31. ágúst, sem er fimmtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Guðni Már Harðarson skólaprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum úr hópi skólafólks. Beðið verður fyrir skólastarfi á Íslandi og safnað til Kristilega skólastarfsins. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Sögustund fyrir börnin. Kl. 14.00 er ensk messa í umsjá séra Bjarna Þórs Bjarnasonar.

Birna Hjaltadóttir, 28/8 2008

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...