Sunnudaginn 27. apríl verður vorhátíð í Hallgrímskirkju. Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni og messuþjónum. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur ásamt barnakór Austurbæjarskóla og Hallgrímskirkju og unglingakór Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson, organisti Hörður Áskelsson. Brúðuleikhús fyrir börnin í safnaðarsal. Enska messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti Hörður Áskelsson, forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 24/4 2008
Kyrrðarstundir á hádegi á fimmtudögum eru nú hættar í bili. Þær hefjast aftur með haustinu.
Birna Hjaltadóttir, 23/4 2008
Alla miðvikudagsmorgna er árdegismessa kl. 8. Stutt hugleiðing og altarisganga. Að messunni lokinni er boðið upp á einfaldan morgunverð í safnaðarsal. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 22/4 2008
Á sumardaginn fyrsta þann 24. apríl nk. verður skátamessa í Hallgrímskirkju. Prestur er sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Skátakórinn syngur undir stjórn Ernu Blöndal.
Birna Hjaltadóttir, 21/4 2008
Messa og barnastarf kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og hópi messuþjóna. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson, félagar úr Mótettukórnum leiða sönginn. Umsjón með barnastarfi hefur Magnea Sverrisdóttir djákni. Samskot dagsins renna til Hjálparstarfs kirkjunnar, en nú stendur yfir vorsöfnun til aðstoðar stríðshrjáðu fólki í Darfúrhéraði í vestur Súdan. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 17/4 2008
Þann 17. apríl verður síðasta kyrrðarstund vetrarins kl. 12:00. Orgelleikur og íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Þar sem næstu tveir fimmtudagar eru almennir frídagar og viðamikil viðgerð er hafin á kirkjuturninum munum við hætta með kyrrðarstundir þar til í haust.
Birna Hjaltadóttir, 16/4 2008
Alla miðvikudaga er árdegismessa kl. 8 í Hallgrímskirkju. Í messunni er stutt hugleiðing og altarisganga. Að henni lokinni er boðið upp á einfaldan morgunverð í safnaðarsal. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 14/4 2008
Fyrirbænamessa er alla þriðjudaga kl. 10:30, beðið fyrir sjúkum.
Birna Hjaltadóttir, 14/4 2008
Messa og barnastarf kl. 11:00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og hópi messuþjóna. Umsjón barnastarfs Magnea Sverrisdóttir, djákni. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti Hörður Áskelsson. Aðalsafnaðarfundur Hallgrímssóknar verður í kórkjallara að lokinni messu.
Birna Hjaltadóttir, 11/4 2008
“Töfrar orgelsins” - orgelsnillingurinn Hannfried Lucke prófessor við Mozartteum í Salsburg, leikur töfrandi orgeltónlist m.a. eftir Mozart og Saint Saëns ásamt því að leika af fingrum fram. Þetta er orgeltónlist fyrir alla fjölskylduna. Aðgangseyrir kr. 1500.- ókeypis fyrir börn og nemendur.
Birna Hjaltadóttir, 9/4 2008