Hallgrímskirkja

 

Messa í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 3. ágúst verður að venju messa í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti verður Arngerður María Árnadóttir.

Birna Hjaltadóttir, 1/8 2008

Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju

Það er hinn virti orgelleikari og kennari Jon Laukvik sem er gestur Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju um verslunarmannahelgina. Það vakti athygli í orgelheiminum þegar hann, einungis 28 ára gamall, var ráðinn prófessor í orgelleik við Listaháskólann í Stuttgart. Þar hefur hann kennt síðan og frá árinu 2001 hefur hann einnig verið prófessor við tónlistarháskólann í Ósló. Þetta er í þriðja sinn sem Jon Laukvik kemur fram á tónleikum í Hallgrímskirkju en tónleikarnir verða laugardaginn 2. ágúst kl. 12 og sunnudagskvöldið 3. ágúst kl. 20.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 31/7 2008

Messur í Hallgrímskirkju sunnudaginn 27. júlí

Messa kl. 11:00. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti verður Björn Steinar Sólbergsson.

Ensk messa kl. 14:00 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Forsöngvari verður Guðrún Finnbjarnardóttir og organisti Björn Steinar Sólbergsson. Messukaffi.

Birna Hjaltadóttir, 25/7 2008

Finnskur orgelsnillingur á Norrænni orgelhátíð í Hallgrímskirkju

Það er hinn þekkti orgelleikari Kalevi Kiviniemi sem leikur á tónleikum Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju helgina 26. – 27. júlí. Í orgelheiminum er hann þekktur fyrir vandaðar umritanir á verkum tónskálda sem skrifuðu lítið eða ekkert fyrir orgel, eins og t.d. Wagner og Rachmaninoff. Þá stóð hann fyrir orgelhátíðinni í Lathi í mörg ár. Hann hefur leikið inn á meira en 100 hljómdiska og er virtur spunamaður. Kalevi Kiviniemi kemur fram á tvennum tónleikum, laugardaginn 26. júlí kl. 12.00 og sunnudaginn 27. júlí kl. 20.00.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 24/7 2008

Árdegismessa í Hallgrímskirkju

Árdegismessurnar á miðvikudögum hafa verið færðar niður í kórkjallara Hallgrímskirkju (gengið inn að austanverðu. Dyr snúa í áttina að Barónsstíg) vegna byggingaframkvæmda. Á morgun, miðvikudaginn 23. júlí, er messa kl. 08.00 að venju. Hugleiðing og altarisganga. Á eftir messunni er samvera yfir léttum morgunverði í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 22/7 2008

Messa sunnudagsins

Sunnudaginn 20. júlí er messa í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Organisti verður Arngerður María Árnadóttir. Messusamskot dagsins renna til UNICEF - Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Birna Hjaltadóttir, 18/7 2008

Bjørn Andor Drage á Norrænni orgelhátíð í Hallgrímskirkju

Helgina 19. – 20. júlí er norski organistinn Bjørn Andor Drage gestur Alþjóðlegs orgelsumars í Hallgrímskirkju. Í orgelheiminum er hann sérstaklega þekktur fyrir umritanir sínar á píanóverkum Edvards Griegs en disk með mörgum þeirra hljóðritaði Bjørn Andor einmitt hér í Hallgrímskirkju árið 1993. Hann kemur fram á tvennum tónleikum, laugardaginn 19. júlí kl. 12.00 og sunnudaginn 20. júlí kl. 20.00.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 16/7 2008

Sunnudagur í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn 13. júlí, sem er áttundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Kristján Valur Ingólfsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Á eftir messunni er boðið upp á kaffisopa að venju. Tónleikar á vegum Alþjóðlegs orgelsumars eru kl. 20.00. Þar leika Svíarnir Christian Lindberg á básúnu og Gunnar Idenstam á orgel. Á efnisskránni eru verk eftir R. Wagner, Chr. Lindberg, G. Idenstam, S. Prokofiev og M. Ravel. Miðaverð er kr. 1.500.-.

Birna Hjaltadóttir, 10/7 2008

Viðgerðir á Hallgrímskirkjuturni

Það var viðbúið að viðgerð á mannvirki á stærð við Hallgrímskirkju yrði umtöluð, enda þykir okkur vænt um þetta frægasta kennileiti Reykjavíkur. Það er því fyrir öllu að vel takist til. Ósk okkar hefur alltaf verið sú að vinna þetta verk í sátt við íbúa Skólavörðuholtsins sem og aðra Reykvíkinga og við hörmum það tímabundna ónæði sem af viðgerðunum hlýst. Við óskum því eftir skilningi og umburðarlyndi íbúa Skólavörðuholtsins og hvetjum þá til þess að horfa til þess árangurs sem stefnt er að. Erilsamir laugardagar eru öllum þreytandi. Unnið er markvisst að því, að þessu verki ljúki sem fyrst.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 10/7 2008

Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju laugardaginn 12. júlí

Einar Jóhannesson, klarinettuleikari, sem er einn af okkar þekktustu einleikurum, mun leika á hádegistónleikunum á laugardaginn 12. júlí kl. 12.00 ásamt Douglas A. Brotchie, organista í Háteigskirkju. Tónleikarnir eru liður í Norrænni orgelhátíð á vegum Alþjóðlegs orgelsumars og sérstaklega styrktir af Norræna orgelsjóðnum. Á efnisskránni er Concertino eftir ítalska tónskáldið Giuseppe Tartini í útsetningu Gordon Jacks og Music when soft voices die, eftir John Speight, sem hann skrifaði sérstaklega fyrir Einar og Douglas. Tónleikunum lýkur með Hugleiðingu um ummyndun Krists á fjallinu, eftir Hafliða Hallgrímsson, sem Douglas leikur á Klais-orgelið. Miðaverð er kr. 1000.-

Birna Hjaltadóttir, 9/7 2008

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...