Fyrirbænaguðsþjónusturnar á þriðjudögum hafa verið fluttar niður í kórkjallara Hallgrímskirkju á meðan á byggingaframkvæmdum stendur. Á morgun, þriðjudaginn 8. júlí er fyrirbænaguðsþjónusta að venju kl. 10.30. Beðið er fyrir sjúkum og þurfandi. Kirkjuverðir taka á móti bænarefni, sem þeir koma síðan til prestanna.
Birna Hjaltadóttir, 7/7 2008
Sunnudaginn 6. júlí, sem er sjöundi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Arngerður María Árnadóttir. Kaffisopi eftir messu. Kl. 20.00 eru tónleikar: Norræn orgelhátíð í Hallgrímskirkju. Bine Katrine Bryndorf organisti frá Danmörku leikur á Klais-orgelið.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 2/7 2008
Á laugardaginn 5. júlí, kl. 12.00 eru orgeltónleikar í Hallgrímskirkju. Bine Katrine Bryndorf frá Danmörku leikur á Klais-orgelið. Á efnisskránni er verkið Uppstigningin - L’Ascension eftir Olivier Messiaen. Miðaverð er kr.1000.-
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 1/7 2008
Helgin í Hallgrímskirkju byrjar á hádegistónleikum á laugardaginn, þann 28. júní kl. 12.00. Þar mun Björn Steinar Sólbergsson leika á Klais-orgelið. Miðasala við innganginn, miðaverð kr. 1000.- Á sunnudaginn 29. júní, sem er sjötti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Helgi Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum. Fermd verða íslensk börn búsett í Noregi. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kl. 14.00 er ensk messa, séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir. Á eftir báðum messunum er boðið upp á kaffisopa. Kl. 17.00 eru orgeltónleikar. Björn Steinar Sólbergsson leikur á Klais-orgelið.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 26/6 2008
Árdegismessurnar á miðvikudögum hafa verið færðar niður í kórkjallara Hallgrímskirkju (gengið inn að austanverðu. Dyr snúa í áttina að Barónsstíg) vegna byggingaframkvæmda. Á morgun, miðvikudaginn 25. júní, er messa kl. 08.00 að venju. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari, sr. Kristján Valur Ingólfsson flytur hugvekju, Birna G. Hjaltadóttir fer með bæn og Grétar Einarsson er forsöngvari. Á eftir messunni er samvera yfir léttum morgunverði í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 24/6 2008
Fyrirbænaguðsþjónusturnar sem eru alla þriðjudaga kl. 10.30 - 11.00 hafa verið færðar niður í kórkjallara vegna byggingaframkvæmda. Á morgun, þriðjudaginn 24. júní, sem er Jónsmessa, er fyrirbænaguðsþjónusta að venju, þar sem beðið er fyrir sjúkum og þurfandi. Í kórkjallara Hallgrímskirkju er gengið inn að austanverðu. Dyrnar snúa niður að Barónsstíg. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 23/6 2008
Á sunnudaginn 22. júní, sem er fimmti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Að lokinni messu verður opnuð sýning á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju: “Vorið og sköpunin”, verk unnin í marmara eftir Sólveigu Baldursdóttur. Fyrstu orgeltónleikar sumarsins eru kl. 17.00. Þar mun kantor Hallgrímskirkju, Hörður Áskelsson leika orgelverk eftir Bach, Buxtehude og fleiri.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 19/6 2008
Á sunnudaginn 15. júní, sem er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Kaffisopi eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 12/6 2008
Á sunnudaginn 8. júní, sem er þriðji sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Samskot þessa sunnudags renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Kaffisopi á eftir messunni að venju.
Birna Hjaltadóttir, 5/6 2008
“Nú heilsar vorsins blíði blær og brosir himinn, land og sær, allt lofar ljósið bjarta. Ó syng af gleði sála mín, lát sumar Drottins ná til þín og lífga hug og hjarta.” Þannig byrjar sumarsálmur nr. 718 í sálmabók íslensku kirkjunnar. Textinn er eftir Sigurbjörn Einarsson, biskup. Nú er sumarið komið með ljós sitt og hlýju og við fyllumst fögnuði yfir sköpunarverki Drottins. Við heilsum nýjum degi með árdegismessu í Hallgrímskirkju. Alla miðvikudaga, allt árið um kring er messa kl. 08.00. Á morgun, 4. júní, þjónar sr. Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Grétar Einarsson flytur hugvekju og Halla Kristinsdóttir, 11 ára, fer með bæn. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 3/6 2008