Á miðvikudögum allt árið um kring er árdegismessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Á morgun, miðvikudaginn 5. október, þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Hannes Guðrúnarson flytur hugvekju, Valdimar Viðar fer með bæn, Sigrún V. Ásgeirsdóttir er forsöngvari og Ómar Kristjánsson aðstoðar við altarisgöngu. Á eftir messunni er léttur morgunverður í safnaðarsalnum eins og venjulega og að þessu sinni bjóða Dóra Þorkelsdóttir og Kristján Þorgeirsson upp á kaffi og góðgæti. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 4/10 2011
Á sunnudaginn 2. október, sem er fimmtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Messuþjónar úr stjórn Listvinafélags Hallgrímskirkju aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Tónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju eru kl. 17.00, sjá neðar á síðunni.
Birna Hjaltadóttir, 29/9 2011
Á morgun, fimmtudaginn 29. september, er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur, íhugun og bæn. Á eftir stundinni er léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 28/9 2011
Mótettukór Hallgrímskirkju heldur tónleika næstkomandi sunnudag 2. október kl. 17.00 í Hallgrímskirkju, í tilefni af tónleikaferð kórsins til Þýskalands og Austurríkis í byrjun október. Tónleikarnir eru á dagskrá Listvinafélags Hallgrímskirkju. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. 
Efnisskrá tónleikanna er sú sama og á þrennum tónleikum kórsins í Passau, Salzburg og Frankfurt dagana 9. - 13. október næstkomandi, en síðastnefndu tónleikarnir eru í tengslum við bókasýninguna í Frankfurt, þar sem Ísland er heiðursgestur í ár. Á tónleikunum mun kórinn flytja verk eftir J.S. Bach og E. Whitacre, ásamt efni af geislaplötunni “Ljósið þitt lýsi mér”, sem kom út árið 2009. Á diskinum má heyra íslenska kirkjutónlist;gömul þjóðlög í hefðbundnum eða nýrri útsetningum, sígild lög eftir þekkt tónskáld, Jón Leifs, Þorkel Sigurbjörnsson og fleiri, ásamt nýjum verkum eftir yngri tónskáld sem samin eru við ljóð skálda fyrri alda. Um er því að ræða mikilvæga kynningu á íslenskri tónlistarhefð á meginlandinu, en bókamessan í Frankfurt er sú stærsta og mikilvægasta sinnar tegundar í heiminum og búist er við að hún muni í ár taka á móti 300.000 gestum frá yfir 100 löndum. 
Tónleikar Mótettukórsins á bókamessunni verða í Dómkirkjunni í Frankfurt þann 13. október kl. 20.00, í St. Nikola kirkjunni í Passau þann 9. október kl. 17.00 og í Evangelische Christuskirche í Salzburg þann 11. október kl. 19.00.
Birna Hjaltadóttir, 28/9 2011
Á morgun, miðvikudaginn 28. september, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari, séra Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur hugvekju, Kristján Þorgeirsson fer með bæn, Grétar Einarsson er forsöngvari og Dóra Þorkelsdóttir aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir er morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar í umsjá Ásu Guðjónsdóttur og Sigurðar Bjarnasonar, þar sem við eigum gott samfélag yfir kaffibolla og meðlæti. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 27/9 2011
Á sunnudaginn 25. september, sem er fjórtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson og í messunni kynnir hann einn sálm frá Sálmafossi á menningarnótt og leiðir söfnuðinn í söng. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Eftir messuna eða kl. 12.30 er haustferð Kvenfélags Hallgrímskirkju. Farið verður um Þingvöll og Lyngdalsheiði að Laugarvatni, þar sem drukkið verður kaffi í Lindinni (gamla húsmæðraskólanum).
Ensk messa er kl. 14.00. Séra Bjarni Þór Bjarnason prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir. Kaffi og meðlæti eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 23/9 2011
Á morgun, fimmtudaginn 22. september, er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur, íhugun og bæn. Á eftir stundinni er léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 21/9 2011
Á morgun, miðvikudaginn 21. september, er morgunmessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, Birna Hjaltadóttir flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn, Sigurður Björnsson er forsöngvari og Kristján Þorgeirsson aðstoðar við útdeilingu sakramentisins. Á eftir er morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar í umsjá Ásu Guðjónsdóttur og Sigurðar Bjarnasonar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 20/9 2011
Á sunnudaginn 18. september, sem er þrettándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð og dagur kærleiksþjónustunnar, er messa í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Magnea Sverrisdóttir djákni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni og rev. Leonard F. Ashford. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Hörður Áskelsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 15/9 2011
Á morgun, fimmtudaginn 15. september, er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur, íhugun og bæn. Á eftir er léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 14/9 2011