Árdegismessa miðvikudag 12. mars
Alla miðvikudagsmorgna kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Í messunni er stutt hugleiðing og altarisganga og að henni lokinni er boðið upp á einfaldan morgunverð í safnaðarsal.
Birna Hjaltadóttir, 11/3 2008
Alla miðvikudagsmorgna kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Í messunni er stutt hugleiðing og altarisganga og að henni lokinni er boðið upp á einfaldan morgunverð í safnaðarsal.
Birna Hjaltadóttir, 11/3 2008
Það teljast jafnan mikil tíðindi þegar biskup Íslands heimsækir söfnuði landsins. Í vetur hefur hann “vísiterað” söfnuði í Reykjavík. Það gerðist síðast 1995, þegar Ólafur Skúlason biskup fór í yfirreið sína um Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Sunnudaginn 9. mars “vísiterar” biskup Hallgrímssöfnuð. Hátíðarmessa verður kl. 11:00 og prédikar biskup þar, en prestar og djákni kirkjunnar þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn stofnanda kórsins Harðar Áskelssonar kantors.
Birna Hjaltadóttir, 6/3 2008
Söngvahátíð með Sindre Eide kl. 20:00 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Ungir söngvarar og hljóðfæraleikarar flytja sálma frá öllum heimshornum undir forystu norska söngprestsins Sindre Eide, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Tónlistarstjóri er Tómas Guðni Eggertsson. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Birna Hjaltadóttir, 6/3 2008
Kyrrðarstund í hádegi fimmtudag 6. mars, kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina.
Birna Hjaltadóttir, 5/3 2008
Kyrrðarstundir eru í hádeginu alla fimmtudaga kl. 12:00. Orgelleikur og íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 2/3 2008
Á síðasta Fræðslumorgni í Hallgrímskirkju á vormisseri 2008 sunnudaginn 2. mars kl. 10 mun Árni Bergmann, rithöfundur, tala um listmálarann Baltasar Samper og kirkjulist hans, en hann hefur unnið sjö ný olíumálverk fyrir Listvinafélag Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni: Síðustu orð Krists á krossinum.
Fjölskyldumessa kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna og hópi messuþjóna. Unglingar flytja samtalsprédikun. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju og Barnakór Austurbæjarskóla og Hallgrímskirkju syngja undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Cindy Xiao Li syngur einsöng. Organisti Hörður Áskelsson.
< ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Kvöldvaka kl. 20 í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna og sr. Birgis Ásgeirssonar. Fjölbreytt dagskrá: Hildur og Halla Heimisdætur leika á hljóðfæri, Ice-stepp hópurinn úr Árbæjarkirkju sýnir dans, tvær stúlkur syngja, fermingarbörn flytja helgileik o.fl. Veitingar.
Birna Hjaltadóttir, 29/2 2008
Laugardaginn 1. mars er orgelandakt í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið og séra Jón Dalbú Hróbjartsson annast ritningarlestur. Leikin verða verk eftir Johannes Brahms og Jehan Alain. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
Birna Hjaltadóttir, 29/2 2008
Kyrrðarstund í hádeginu í dag kl. 12. Orgelleikur, íhugun, bænir. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina.
Birna Hjaltadóttir, 28/2 2008
Miðvikudagsmorgunn í Hallgrímskirkju hefst kl. 8:00 á árdegismessu. Sr. Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Grétar Einarsson hefur hugvekju. Morgunkaffi í safnaðarsal að messu lokinni.
Birna Hjaltadóttir, 26/2 2008
Fræðslumorgunn kl. 10:00. Dr. Sigurbjörn Einarsson talar um Biblíuna á fræðslumorgni. Rauði þráðurinn í ritstörfum dr. Sigurbjörns er Biblían, heilög ritning, og er það ávallt sérstakt tilhlökkunarefni að fá að hlýða á framsögn hans.
Messa og barnastarf kl. 11:00 Sr. Birgir Ásgeirsson, predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukórnum syngja, en organisti og söngstjóri er Hörður Áskelsson.
Á undan messunni leikur Ágúst Ingi Ágústsson fyrri hluta úr sónötu eftir Julius Reubke við Davíðssálm nr. 94. Síðari hlutar verksins verða leiknir í messunni.
Ensk messa kl. 14:00. Ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir. Organisti Hörður Áskelsson.
Tónleikarnir “Sálmar og tónaljóð”, sem vera áttu kl. 17:00, frestast til 30. mars
Birna Hjaltadóttir, 21/2 2008
Opnunartími
Opnunartímar: Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00. The church is open every day from 9 am to 5 pm.
CREDO: Myndlistarsýning Elínar Eddu Árnadóttur og Sverris Guðjónssonar í anddyri Hallgrímskirkju til 15. febrúar næstkomandi.
Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Hallgrímskirkja á kirkjukort.net
Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.
Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi ![]()