Hallgrímskirkja

 

Árdegismessa

Alla miðvikudaga, allt árið um kring, er árdegismessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Á morgun, miðvikudaginn 20. febrúar, þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Árni Svanur Daníelsson flytur hugvekju og Birna Gunnarsdóttir fer með bæn. Léttur morgunverður í safnaðarsalnum á eftir messunni. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 19/2 2008

Tónlistarhópurinn Camerarctica kemur nú í annað sinn fram á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju, en hópurinn flutti Kvartett um endalok tímans eftir Olivier Messiaen í Hallgrímskirkju á afmælisári Listvinafélagsins 2007. Camerarctica hefur starfað frá árinu 1992 um það leyti sem hljóðfæraleikararnir komu heim frá námi við tónlistarháskóla erlendis. Félagar hópsins hafa meðal annars leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, kennt hljóðfæraleik við tónlistarskólana á höfuðborgarsvæðinu og komið víða fram sem einleikarar. Camerarctica hefur sérstaklega vakið athygli og hlotið lofsamlega dóma fyrir flutning sinn á verkum Mozarts á árlegum kertaljósatónleikum í kirkjum á höfuðborgarsvæðinu og á strengjakvartettum Shostakovitch á tónleikum Kammermúsikklúbbsins í Reykjavík. Hópurinn hefur leikið á Myrkum músíkdögum, Listahátíð í Reykjavík, Norrænum músikdögum, Salisbury hátíðinni í Bretlandi og gefið út geisladisk með verkum eftir W.A. Mozart. Camerarctica var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar árið 2005. Kammerhópurinn Camerarctica eru: Ármann Helgason klarinett, Hallfríður Ólafsdóttir flauta, Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Ingrit Karlsdóttir fiðla, Guðrún Þórarinsdóttir víóla, Sigurgeir Agnarsson celló. Á tónleikunum Sálmar og tónaljóð syngur Marta Guðrún Halldórsdóttir sópransöngkona með hópnum.

Sálmar á atómöld eftir Elínu Gunnlaugsdóttur var samið árið 2004 fyrir Camerarctica við ljóð eftir Matthías Johannessen. Tónskáldið tónskreytir valin ljóð úr ljóðabálki Matthíasar með sópranrödd, flautu, klarinettu og strengjakvartett.

Þorkell Sigurbjörnsson hefur samið nýtt verk fyrir Camerarctica og notar hann sálmatexta föður síns, herra Sigurbjörns Einarssonar biskups, sem hefst á orðunum “þú heimsins ljós”.

Klarinettukvintett tónskáldsins og orgelleikarans Max Regers er síðasta stórvirki höfundarins, saminn veturinn 1915-1916. Það minnir um margt á klarinettukvintetta Mozarts og Brahms hvað varðar form og hljóðfæraskipan.

Birna Hjaltadóttir, 19/2 2008

Styrking sjálfsmyndar á heimilinu

Fjórði fræðslumorgunn þessa misseris er á sunnudaginn 17. febrúar kl. 10.00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Séra Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, flytur fyrirlesturinn: Styrking sjálfsmyndar á heimilinu. Petrína hefur á undanförnum árum haldið fjölmörg námskeið í sjálfsstyrkingu bæði fyrir konur og einnig unglinga og skrifað efni til notkunar í kirkjustarfi. Hér mun hún sækja í þann sjóð og fjalla um aðferðir til sjálfsstyrkingar á heimilinu. Messa og barnastarf sunnudagsins, sem er annar sunnudagur í föstu, hefjast kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Irmu Sjöfn Óskarsdóttur og messuþjónum. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða safnaðarsönginn. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kaffisopi eftir messu að venju.

Birna Hjaltadóttir, 14/2 2008

Kyrrðarstund í Hallgrímskirkju

Á morgun, fimmtudaginn 14. febrúar, er kyrrðarstund í hádeginu kl. 12.00. Orgelleikur, hugvekja/bæn. Á eftir er léttur hádegisverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 13/2 2008

Árdegismessa

Á morgun, miðvikudaginn 13. febrúar, er árdegismessa í kór Hallgrímskirkju að venju. Messan hefst kl. 08.00 og stendur yfir í um það bil 40 mínútur. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari í messu morgundagsins, sr. Kristján Valur Ingólfsson flytur hugvekju og Birna G. Hjaltadóttir fer með bæn. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 12/2 2008

Fyrirbænaguðsþjónusta

Alla þriðjudaga er fyrirbænaguðsþjónusta/messa í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30-11.00. Annan hvern þriðjudag er altarisganga. Beðið fyrir sjúkum. Á þriðjudögum er einnig starf eldri borgara í kórkjallara frá kl. 11.00-14.00 undir stjórn Margrétar Hróbjartsdóttur. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 11/2 2008

Hve nauðsynlegir eru foreldrar börnum?

Á fræðslumorgni í suðursal Hallgrímskirkju næstkomandi sunnudag, 10. febrúar, sem er fyrsti sunnudagur í föstu, flytur Benedikt Jóhannesson, sálfræðingur hjá Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, erindi um foreldra og börn. Benedikt hefur verið ötull talsmaður fjöslkyldunnar í íslensku þjóðfélagi. Hann gerði rannsókn árið 2006 um líðan barna eftir fjölskylduaðstæðum og mun í erindi sínu skoða farsæld barna í því ljósi. Fræðslumorgunn hefst kl. 10.00 og lýkur laust fyrir kl. 11.00, en þá hefst messan í kirkjuskipinu. Séra María Ágústsdóttir, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Þorvaldi Víðissyni, miðborgarpresti, og messuþjónum. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur í messunni undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Hörður Áskelsson, kantor. Sunnudagaskólinn er á sínum stað og börnin eru hvött til að koma í öskudagsbúningunum sínum. Kaffisopi eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 6/2 2008

Öskudagur - árdegismessa

Á morgun, miðvikudaginn 6. febrúar, sem er öskudagur, er messa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Messan er í umsjá séra Kristjáns Vals Ingólfssonar. Á morgun er þess einnig minnst, að árdegismessur hófust í Hallgrímskirkju fyrir 5 árum. Af því tilefni verður boðið upp á afmælistertu með kaffinu í safnaðarsalnum á eftir messunni. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 5/2 2008

Mót hækkandi sól í Hallgrímskirkju

Á kyndilmessu, laugardaginn 2. febrúar, er orgelandakt í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið og séra Birgir Ásgeirsson annast ritningarlestur. Leikin verða verk eftir J.S. Bach og Ch. Widor. Fræðslumorgunn er á undan messunni kl. 10.00 á sunnudag 3. febrúar, sem er sunnudagur í föstuinngang. Það er dr. Árelía Eydís Guðmundsdóttir, stjórnmálafræðingur og lektor við viðskipta- og hagfræðideild HÍ, sem talar um bjartsýni og von andspænis erfiðleikum undir yfirskriftinni “Mót hækkandi sól”. Í messunni kl. 11.00 prédikar sr. Birgir Ásgeirsson og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og hópi messuþjóna. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson og kórsöng annast félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju. Barnastarfið er á sama tíma í umsjón Magneu Sverrisdóttur djákna.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 31/1 2008

Kyrrðarstund

Fimmtudaginn 31. janúar er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur og íhugun. Léttur hádegisverður í safnaðarsal á eftir. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 30/1 2008

Opnunartími
Opnunartímar: Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00. The church is open every day from 9 am to 5 pm.

CREDO: Myndlistarsýning Elínar Eddu Árnadóttur og Sverris Guðjónssonar í anddyri Hallgrímskirkju til 15. febrúar næstkomandi.

Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

 

Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi RSS