Á morgun, miðvikudaginn 30. janúar, er árdegismessa kl. 08.00. Hugvekja, söngur, bæn og altarisganga. Séra María Ágústsdóttir þjónar fyrir altari, sr. Ása Björk Ólafsdóttir flytur hugvekju og Dóra Þorkelsdóttir fer með bæn. Á eftir messunni, sem stendur yfir í um það bil 40 mínútur, er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 29/1 2008
Alla þriðjudaga er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju. Á morgun, þriðjudaginn 29. janúar, hefst guðsþjónustan kl. 10.30 og stendur yfir í hálfa klukkustund. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 28/1 2008
Sunnudaginn 27. janúar 2008, sem er annar sunnudagur í níuviknaföstu, er messa og barnastarf kl. 11.00. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Jóni Dalbú Hróbjartssyni, séra Birgi Ásgeirssyni og hópi messuþjóna. Hrafnhildur Árnadóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, nemendur Söngskólans í Reykjavík, syngja dúett. Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir safnaðarsöng. Organisti er Hörður Áskelsson. Kaffisopi eftir messu. Kl. 14.00 er Ensk messa í umsjá séra Bjarna Þórs Bjarnasonar. Organisti er Hörður Áskelsson og forsöngvari er Guðrún Finnbjarnardóttir. Kaffi eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 24/1 2008
Fræðslumorgnar hefjast að nýju í Hallgrímskirkju sunnudaginn 27. janúar 2008 kl. 10.00. Þá flytur dr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor við Guðfræðideild Háskóla Íslands, fyrirlestur sinn: Þýðingar Biblíunnar á íslensku í tilefni Biblíudagsins. Dr. Einar átti sæti í þýðingarnefnd Nýja Testamentisins frá árinu 2003, en ný biblíuþýðing leit sem kunnugt er dagsins ljós síðastliðið haust. Fjallar erindi hans um tungutak og málfar í íslenskum biblíuþýðingum fyrr og nú. Allir velkomnir og heitt á könnunni.
Birna Hjaltadóttir, 24/1 2008
Á miðvikudögum, allt árið um kring, er árdegismessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Söngur, hugvekja, bæn og altarisganga. Messan stendur yfir í um það bil 40 mínútur. Á morgun, miðvikudaginn 23. janúar, þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Sigrún Ásgeirsdóttir flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn og séra Kristján Valur Ingólfsson er forsöngvari. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 22/1 2008
Á morgun, þriðjudaginn 22. janúar, er fyrirbænamessa kl. 10.30 í kapellu Hallgrímskirkju. Beðið fyrir sjúkum. Fyrirbænamessurnar eru alla þriðjudaga allt árið um kring og er altarisganga í annað hvort skipti.
Birna Hjaltadóttir, 21/1 2008
Á sunnudaginn þann 20. janúar, sem er fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Fermingarbörn aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Birna Hjaltadóttir, 17/1 2008
Fimmtudaginn 17. janúar er kyrrðarstund kl. 12 á hádegi. Orgelleikur og íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina.
Birna Hjaltadóttir, 16/1 2008
Alla miðvikudaga kl. 8.00 um morguninn eru árdegismessur í Hallgrímskirkju.
Í messunni er stutt hugleiðing og altarisganga og að henni lokinni er einfaldur morgunverður í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Gert er ráð fyrir að þau sem eiga stutt að fara geti verið komin til vinnu kl. 09.00.
Birna Hjaltadóttir, 15/1 2008
Messa og barnastarf kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukórnum leiða safnaðarsönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Magnea Sverrisdóttir annast barnastarfið sem endranær.
Birna Hjaltadóttir, 10/1 2008