Hallgrímskirkja

 

Páskadagur í Hallgrímskirkju.

Árdegisguðsþjónusta kl. 8:00. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna. Hátíðarmessa og barnastarf verður kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur í báðum messunum undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Birna Hjaltadóttir, 22/3 2008

Föstudagurinn langi. Guðsþjónusta og lestur passíusálma.

Föstudagurinn langi hefst með guðsþjónustu kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Mótettukórinn syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors. Lestur passíusálma hefst kl. 13:00. Að þessu sinni lesa félagar úr Mótettukórnum sálmana, en sumir sálmarnir verða sungnir af einsöngvurum, kór og/eða söfnuðinum.

Birna Hjaltadóttir, 18/3 2008

Skírdagur í Hallgrímskirkju. Tónleikar og Kvöldmessa.

Á skírdag verða tónleikar Listvinafélagsins kl. 17:00. Flutt verður Passia eftir Arvo Pärt. Schola cantorum syngja ásamt einsöngvurum og hljóðfæraleikurum. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Um kvöldið kl. 20:00 verður kvöldmessa. Sr. María Ágústsdóttir prédikar og þjónar ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni. Hópur úr Mótettukórnum syngur undir stjórn Björns Steinar Sólbergssonar. Einnig syngur kór frá Færeyjum tvo sálma í messunni. Kórinn heitir Effata og er hér á ferð um páskana. Í lok messunnar merður altari kirkjunnar afskrýtt á svokallaðri Getsemanestund.

Birna Hjaltadóttir, 18/3 2008

Sunnudagur 16. mars

Pálmasunnudagur. Messa og barnastarf kl. 11:00. Börnin fá “pálmagrein” í hönd í tilefni dagsins og ganga syngjandi inn í kirkjuna. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og hópi messuþjóna. Gamlir félagar úr Mótettukórnum syngja undir stjórn Björns Steinars Sólbergssonar organista.

Birna Hjaltadóttir, 14/3 2008

Listvinafélag Hallgrímskirkju

Nk. laugardag 15. mars kl. 17 opnar ný listsýning á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Stórfengleg nýsköpun í íslenskri kirkjulist mun verða til sýnis í kórrými Hallgrímskirkju, en sýningin ber yfirskriftina Sjö orð Krists á krossinum.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 13/3 2008

Mikil gleði á biskupsvisitasíu í Hallgrímskirkju

Mikið var um dýrðir síðastliðinn sunnudag hér í Hallgrímskirkju er biskup vísiteraði söfnuðinn. Biskup prédikaði og færði börnum safnaðarins gjöf og Drengjakórinn söng ásamt Mótettukórnum. Messuna sóttu 460 manns og ríkti mikil gleði og ánægja yfir þessari góðu stund í kirkjunni.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 13/3 2008

Kyrrðarstund fimmtudag 13. mars

Kyrrðarstund í hádegi fimmtudag kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina.

Birna Hjaltadóttir, 12/3 2008

Árdegismessa miðvikudag 12. mars

Alla miðvikudagsmorgna kl. 8 eru árdegismessur í Hallgrímskirkju. Í messunni er stutt hugleiðing og altarisganga og að henni lokinni er boðið upp á einfaldan morgunverð í safnaðarsal.

Birna Hjaltadóttir, 11/3 2008

Sunnudagur 9. mars 2008. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson vísiterar Hallgrímssöfnuð

Það teljast jafnan mikil tíðindi þegar biskup Íslands heimsækir söfnuði landsins. Í vetur hefur hann “vísiterað” söfnuði í Reykjavík. Það gerðist síðast 1995, þegar Ólafur Skúlason biskup fór í yfirreið sína um Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Sunnudaginn 9. mars “vísiterar” biskup Hallgrímssöfnuð. Hátíðarmessa verður kl. 11:00 og prédikar biskup þar, en prestar og djákni kirkjunnar þjóna fyrir altari ásamt messuþjónum. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn stofnanda kórsins Harðar Áskelssonar kantors.

Lesa áfram …

Birna Hjaltadóttir, 6/3 2008

Sunnudagur 9. mars 2008. Söngvahátíð með Sindre Eide.

Söngvahátíð með Sindre Eide kl. 20:00 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju. Ungir söngvarar og hljóðfæraleikarar flytja sálma frá öllum heimshornum undir forystu norska söngprestsins Sindre Eide, sem unnið hefur stórvirki í að kynna trúartónlist fjarlægra þjóða með ólíkum hryn og sveiflu og laga að lútersku helgihaldi. Tónlistarstjóri er Tómas Guðni Eggertsson. Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Birna Hjaltadóttir, 6/3 2008

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...