Hallgrímskirkja

 

Fræðslumorgunn í Hallgrímskirkju

Fræðslumorgnar hefjast að nýju í Hallgrímskirkju sunnudaginn 27. janúar 2008 kl. 10.00. Þá flytur dr. Einar Sigurbjörnsson, prófessor við Guðfræðideild Háskóla Íslands, fyrirlestur sinn: Þýðingar Biblíunnar á íslensku í tilefni Biblíudagsins. Dr. Einar átti sæti í þýðingarnefnd Nýja Testamentisins frá árinu 2003, en ný biblíuþýðing leit sem kunnugt er dagsins ljós síðastliðið haust. Fjallar erindi hans um tungutak og málfar í íslenskum biblíuþýðingum fyrr og nú. Allir velkomnir og heitt á könnunni.

Birna Hjaltadóttir, 24/1 2008

Árdegismessa

Á miðvikudögum, allt árið um kring, er árdegismessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Söngur, hugvekja, bæn og altarisganga. Messan stendur yfir í um það bil 40 mínútur. Á morgun, miðvikudaginn 23. janúar, þjónar séra Jón Dalbú Hróbjartsson fyrir altari, Sigrún Ásgeirsdóttir flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn og séra Kristján Valur Ingólfsson er forsöngvari. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.

Birna Hjaltadóttir, 22/1 2008

Fyrirbænamessa

Á morgun, þriðjudaginn 22. janúar, er fyrirbænamessa kl. 10.30 í kapellu Hallgrímskirkju. Beðið fyrir sjúkum. Fyrirbænamessurnar eru alla þriðjudaga allt árið um kring og er altarisganga í annað hvort skipti.

Birna Hjaltadóttir, 21/1 2008

Sunnudagur í Hallgrímskirkju

Á sunnudaginn þann 20. janúar, sem er fyrsti sunnudagur í níuviknaföstu, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Fermingarbörn aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.

Birna Hjaltadóttir, 17/1 2008

Kyrrðarstund í Hallgrímskirkju

Fimmtudaginn 17. janúar er kyrrðarstund kl. 12 á hádegi. Orgelleikur og íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir stundina.

Birna Hjaltadóttir, 16/1 2008

Árdegismessa miðvikudaginn 16. janúar 2008

Alla miðvikudaga kl. 8.00 um morguninn eru árdegismessur í Hallgrímskirkju.
Frá árdegismessuÍ messunni er stutt hugleiðing og altarisganga og að henni lokinni er einfaldur morgunverður í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Gert er ráð fyrir að þau sem eiga stutt að fara geti verið komin til vinnu kl. 09.00.

Birna Hjaltadóttir, 15/1 2008

Sunnudagurinn 13. janúar 2008

Messa og barnastarf kl. 11:00. Sr. Birgir Ásgeirsson predikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukórnum leiða safnaðarsönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Magnea Sverrisdóttir annast barnastarfið sem endranær.

Birna Hjaltadóttir, 10/1 2008

Kyrrðarstund fimmtudag 10. janúar 2008

Kyrrðarstund í hádegi, fimmtudag 10. janúar, kl. 12. Orgelleikur, íhugun. Léttur málsverður eftir stundina.

Birna Hjaltadóttir, 9/1 2008

Sunnudagur 6. janúar 2008 - Þrettándinn

Á þrettándanum, sunnudaginn 6. janúar, eru jólin sungin út með messu í Hallgrímskirkju kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Bernharði Guðmundssyni og messuþjónum. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða söng. Söfnun dagsins fer til kristniboðsins og sögustund er fyrir börnin.

Birna Hjaltadóttir, 3/1 2008

Service in English - Christmas Service

Sunday December 30th 2007 is Christmas Service with Holy Communion in Hallgrimskirkja at 2 pm. Celebrant and Preacher is The revd. Bjarni Thor Bjarnason, organist is Hördur Askelsson and Leading singer is Gudrun Finnbjarnardottir. Refreshments after the service.

Birna Hjaltadóttir, 27/12 2007

Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.

Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.

Viðtalstímar

Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Listavinafélagið

Safnaðarblað okt. 2010

Hallgrímskirkja á kirkjukort.net

Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.

Fimmtudagur

Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.

Dagskrá ...