Sunnudaginn 30. september, sem er sautjándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er mikil hátíð í Hallgrímskirkju. Dagurinn hefst á norrænni messu og barnastarfi kl. 11.00. Biskup Kaupmannahafnar, Erik Norman Svendsen prédikar. Altarisþjónustuna annast biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson og séra Jón Dalbú Hróbjartsson ásamt lesurum frá öllum Norðurlöndunum og messuþjónum. Messan er lokaathöfn norræna höfuðborgarmótsins, sem er haldið hér um helgina og er hún opin öllum. Ræða biskupsins er þýdd á íslensku. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kl. 14.00 er ensk messugjörð í umsjá séra Bjarna Þórs Bjarnasonar. Jónína Kristinsdóttir er forsöngvari og leiðir almennan messusöng.
Birna Hjaltadóttir, 27/9 2007
Kyrrðarstundir í Hallgrímskirkju eru byrjaðar aftur eftir sumarhlé. Á morgun, fimmtudaginn 27. september kl. 12.00 er kyrrðarstund með orgeltónlist og hugvekju/bæn. Léttur hádegisverður í safnaðarsal á eftir. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 26/9 2007
Nýtt fjögurra kvölda námskeið um Biblíuna í daglega lífinu hefst miðvikudaginn 3. október kl. 20.00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni: Lesum Biblíuna! Kennari er sr. María Ágústsdóttir, héraðsprestur. Að þessu sinni er áherslan lögð á innviði Biblíunnar, mismunandi þýðingar og stöðu apókrýfu ritanna, í tilefni þess að ný þýðing kemur út nú í október. Hinn siðræni þroski manneskjunnar í daglega lífinu verður hafður að leiðarljósi í þessari skoðunarferð um lönd ritningarinnar og dæmi úr Biblíunni skoðuð okkur til lærdóms. Skráning er á Biskupsstofu í síma 535 1500. Sjá www. kirkjan.is/leikmannaskoli.
Birna Hjaltadóttir, 26/9 2007
Námskeið fyrir messuhópana í Hallgrímskirkju er haldið á morgun, miðvikudaginn 26. september kl. 20.00 - 22.00. Námskeiðinu stjórna prestar Hallgrímskirkju. Mætum öll!
Birna Hjaltadóttir, 25/9 2007
Á morgun miðvikudaginn 26. september kl. 14.00 er opið hús fyrir eldri borgara í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Á dagskránni er ávarp og bæn, söngur, erindi Einars Benediktssonar, fyrrv. sendiherra um Barnahjálp Sameinuðu Þjóðanna, kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 25/9 2007
Á miðvikudögum allt árið um kring er árdegismessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Messan stendur yfir í um það bil 40 mínútur. Á þessum tíma ársins kemur sólin seinna upp og sendir geisla sína beint inn um kórgluggana í kirkjunni á meðan á messunni stendur. Gott er að eiga kyrrláta stund í árdagsbirtu sköpunar Drottins og byrja daginn í húsi hans. Á morgun, miðvikudaginn 26. september er það séra María Ágústsdóttir sem þjónar fyrir altari, Kristján Þorgeirsson flytur hugvekju, sr. Ása Björk Ólafsdóttir fer með bæn og Grétar Einarsson er forsöngvari. Á eftir messunni söfnumst við saman í safnaðarsalnum til morgunverðar. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 25/9 2007
Á þriðjudögum allt árið er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Annan hvern þriðjudag er altarisganga. Athöfnin tekur hálfa klukkustund. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 24/9 2007
Á sunnudaginn 23. september kl. 17.00 eru orgeltónleikar á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju í tónleikaröðinni “Sálmar”. Douglas Brotchie, organisti Háteigskirkju leikur orgeltónlist sem samin er í kring um þekkt sálmalög. Efnisskráin spannar tímann frá barokki til samtímans og inniheldur mjög ólikar útfærslur sálmalaga bæði í stíl og formi. Miðasala við innganginn - verð kr. 1.500.- og kr. 500.- fyrir nemendur.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 21/9 2007
Á sunnudaginn 23. september, sem er sextándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Maríu Ágústsdóttur. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Hörður Áskelsson. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Kaffisopi eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 20/9 2007
Alla miðvikudaga er árdegismessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Á morgun, miðvikudaginn 19. september, er það séra Birgir Ásgeirsson sem þjónar fyrir altari, Grétar Einarsson flytur hugvekju, Vilhjálmur Grímsson fer með bæn og Sigurður Björnsson er forsöngvari. Komið og eigið notalega og kyrrláta stund áður en erill dagsins byrjar. Á eftir messunni er morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 18/9 2007