Hallgrímskirkja

 

Messur og helgihald á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju

Dagana 20.-28. ágúst verður Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju með afar fjölbreyttri dagskrá, en þetta er 10. Kirkjulistahátíðin sem haldin er í kirkjunni.

Hátíðin verður sett á hátíðarsamkomu á laugardaginn 20. ágúst kl. 16.00 og síðan verður Listavaka unga fólksins fram eftir kvöldi en kl. 10.00 verður helgistund í umsjá sr. Jóns D. Hróbjartssonar. Margrét Sigurðardóttir, sópran, syngur einsöng.

Sunnudaginn 21. ágúst verður hátíðarmessa kl. 11.00. Sr. Sigurður Pálsson prédikar en með honum þjóna að messunni sr. Þorvaldur Karl Helgason, biskupsritari, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, Magnea Sverrisdóttir, djákni og fleiri messuþjónar. Sönghópurinn Voces Thules syngur og organisti verður Björn Steinar Sólbergsson. David Sanger konsertorganisti frá Englandi, einn af gestum Kirkjulistahátíðar, leikur eftirspil í messunni. Sögustund verður fyrir börnin. Eftir messu verður boðið upp á kaffisopa.

Alla daga Kirkjulistahátíðar verður helgihald, þ.e. hið hefðbundna helgihald Hallgrímskirkju í miðri viku, Bænamessa kl. 10.30 á þriðjudag og Morgunmessa kl. 08.00 á miðvikudag, þá verða Tónlistarandaktir kl. 12.00 alla dagana frá mánudegi til laugardags þar sem fjölmargir listamenn og prestar koma við sögu.

Lokadagur hátíðarinnar verður sunnudaginn 28. ágúst, en þá verður m.a. hátíðarmessa með biskupi Íslands Karli Sigurbjörnssyni o.fl.

Birna Hjaltadóttir, 18/8 2005

Messa í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 14. ágúst 2005 verður messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju kl. 11:00. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn.. Að venju verður boðið upp á kaffisopa eftir messu.

Birna Hjaltadóttir, 12/8 2005

James David Christie á síðustu helgi Sumarkvölds við orgelið

Hinn heimsþekkti orgelleikari James David Christie er kominn til landsins til að leika á tónleikum helgarinnar. Hann leikur á hádegistónleikunum 13. ágúst kl. 12 og á kvöldtónleikum sunnudaginn 14. ágúst kl. 20. James David Christie er einn virtasti orgelleikari Bandaríkjanna auk þess að vera mjög eftirsóttur kennari.

Lesa áfram …

Erla Elín Hansdóttir, 11/8 2005

Hádegistónleikar fimmtudag - Friðrik Vignir Stefánsson

Fimmtudaginn 11. ágúst leikur Friðrik Vignir Stefánsson, organisti Grundarfjarðarkirkju, á orgeltónleikum á vegum Sumarkvölds við orgelið sem hefjast kl. 12 að hádegi. Þeir eru styrktir af Félagi íslenskra organleikara en ágóðinn rennur til viðhalds orgelsins. Þetta eru jafnframt síðustu fimmtudagstónleikarnir í sumar.

Lesa áfram …

Erla Elín Hansdóttir, 9/8 2005

Messa í Hallgrímskirkju

Sunnudaginn 7. ágúst verður messa með altarisgöngu í Hallgrímskirkju. Séra Sigurður Pálsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hörður Áskelsson. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða sönginn. Á eftir messu verður boðið upp á kaffisopa að venju.

Birna Hjaltadóttir, 5/8 2005

Pólsk orgelveisla um helgina- Sumarkvöld við orgelið

Það er ekki oft sem pólsk tónlist heyrist í Hallgrímskirkju en núna um helgina er pólski orgelleikarinn Zygmunt Strzep gestur tónleikaraðarinnar Sumarkvöld við orgelið. Hann leikur á tvennum tónleikum, laugardaginn 6. ágúst kl. 12 og sunnudaginn 7. ágúst kl. 20. Zygmunt Strzep er meðal virtustu organista Pólverja um þessar mundir.

Lesa áfram …

Erla Elín Hansdóttir, 4/8 2005

Hádegistónleikar fimmtudag - íslensk og frönsk orgeltónlist

Fimmtudaginn 4. ágúst leikur Steingrímur Þórhallsson á orgeltónleikum í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir eru á vegum Sumarkvölds við orgelið og hefjast kl. 12 að hádegi. Þeir eru styrktir af Félagi íslenskra organleikara en ágóðinn rennur til viðhalds orgelsins. Á efnisskránni eru þrír íslenskir sálmforleikir og þættir úr orgelsinfóníum eftir Widor og Vierne.

Lesa áfram …

Erla Elín Hansdóttir, 2/8 2005

Sumarkvöld við orgelið - Tónleikar helgarinnar

Danski orgelleikarinn Anne Kirstine Mathiesen er gestur Sumarkvölds við orgelið í Hallgrímskirkju. Hún leikur laugardaginn 30. júlí kl. 12 og sunnudaginn 30. júlí kl. 20. Anne Kirstine Mathiesen er organisti Sct. Nicolai kirkju í Køge, sunnan Kaupmannahafnar en á undanförnum árum hefur hún líka vakið athygli sem góður orgelleikari á tónleikaferðum víða um Norðurlönd og í Þýkalandi, auk þess að vera eftirsótt sem undirleikari með kórum og einsöngvurum. Þá hefur hún tekið þátt í kynningum á gömlum dönskum orgelum, bæði í kirkjum og hallarkapellum. < ?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />

Lesa áfram …

Erla Elín Hansdóttir, 30/7 2005

Messa sunnudaginn 31. júlí 2005

Sunnudaginn 31. júlí verður messa kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Sr. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti verður Jónas Þórir og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngja. Einnig mun þýskur ferðahópur á vegum Liebenzeller Mission taka þátt í messunni og messuþjónar úr hópi sjálfboðaliða aðstoða. Samskot dagsins munu renna til Hjálparstarfs kirkjunnar. Eftir messu er boðið upp á kaffisopa að venju.

Ensk messa verður kl. 14:00. Sr. Bjarni Þór Bjarnason predikar og þjónar fyrir altari, en hann starfaði um þriggja ára skeið í anglíkönsku kirkjunni og hefur annast messugjörð á ensku í Hallgrímskirkju undanfarin ár. Organisti verður Douglas A. Brotchie og forsöngvari Guðrún Finnbjarnardóttir. Messukaffi er í suðursal að messu lokinni.

Helgihald á virkum dögum er hefðbundið, fyrirbænamessa á þriðjudögum kl. 10.30 og morgumessa kl. 08.00 á miðvikudögum.

Birna Hjaltadóttir, 27/7 2005

Íslensk ættjarðarlög í nýju ljósi

Á hádegistónleikum í Hallgrimskirkju nk. fimmtudag flytja þeir Sigurður Flosason og Gunnar Gunnarson íslensk ættjarðarlög í eigin útsetningum þar sem spuninn gegnir stóru hlutverki. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og standa í um hálfa klukkustund.

Á efnisskránni eru hefðbundin ættjarðarlög, Land míns föður, Hver á sér fegra föðurland og Lofsöngur. Einnig leika þeir íslensk einsöngslög og dægurlög sem á síðari árum hafa fest sig í sessi sem ættjarðarlög. Lögin er öll að finna á hljómdiski sem kom út í fyrra með leik Sigurðar og Gunnars og nefnist Draumalandið.

Lesa áfram …

Sverrir Jónsson, 26/7 2005

Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 - 17.00.

Skráning fermingarbarna fer fram í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 7. september kl. 17.00 í safnaðarsal kirkjunnar. Sjá nánar undir liðnum "Ferming" ofar á þessari síðu.


Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.

Listavinafélagið

Safnaðarblað

Turninn
Turninn er opinn alla daga frá 09.00 - 17.00. Verð kr. 500 fyrir fullorðna og kr. 100 fyrir skólabörn.
The tower is open from 9 am to 5 pm every day. Entry 500 ISK for adults and ISK 100 for schoolchildren.

Miðvikudagur

- 08.00 - Árdegismessa.

- 10.00-12.00 - Foreldramorgnar í kórkjallara - umsjón Magnea Sverrisdóttir djákni.

Dagskrá ...