Gleðilegt nýtt ár! Á sunnudaginn 8. janúar, sem er fyrsti sunnudagur eftir þrettánda, er messa og barnastarf í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu eins og venjulega. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 5/1 2012
Foreldramorgnar byrja að nýju eftir jólafrí á miðvikudaginn 4. janúar kl. 10.00 til 12.00 í kórkjallara kirkjunnar. Parents morning starts again after the holidays on wednesday january the 4th at 10 am in the church’s basement.
Kyrrðarstund hefst á fimmtudaginn þann 5. janúar kl. 12.00. Orgelleikur, íhugun og bæn. Léttur hádegisverður á eftir stundinni.
Öldrunarstarfið hefst föstudaginn 6. janúar kl. 11.00 til 13.30. Leikfimi, léttur hádegisverður og samvera.
Birna Hjaltadóttir, 2/1 2012
Hátíðin í Hallgrímskirkju hefst á aðfangadag, 24. desember, kl. 17.00. Björn Steinar Sólbergsson organisti Hallgrímskirkju leikur jólatónlist á orgelið. Kl. 18.00 er aftansöngur. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Daði Kolbeinsson leikur á óbó. Barnakór syngur undir stjórn Helgu Vilborgar Sigurjónsdóttur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Guðsþjónusta á jólanótt hefst kl. 23.30. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson. Á undan guðsþjónustunni kl. 23.00 leikur Hörður Áskelsson kantor Hallgrímskirkju jólalög á orgelið.
Jóladagur - 25. desember. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Annar dagur jóla - 26. desember. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14.00. Séra Birgir Ásgeirsson þjónar fyrir altari. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Hörður Áskelsson. Kl. 16.00 er ensk messa. Séra Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Guðrún Finnbjarnardóttir er forsöngvari og Hörður Áskelsson er organisti.
Jólatónleikar með Mótettukór Hallgrímskirkju og Þóru Einarsdóttur sópran eru miðvikudaginn 28. og fimmtudaginn 29. desember kl. 20.00. Jólatónleikar Mótettukórsins eru nú haldnir í 30. sinn og að þessu sinni býður kórinn áheyrendum sínum upp á tónlist frá ýmsum löndum. Erlendir kórfélagar leggja til jólalög frá sínum heimalöndum, Póllandi, Tékklandi, Hollandi og Þýskalandi og er sungið á móðurmáli þeirra. Þóra Einarsdóttir er einsöngvari með kórnum, Daði Kolbeinsson leikur á óbó og Áshildur Haraldsdóttir leikur á flautu. Orgelleikari er Björn Steinar Sólbergsson. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Miðasala í Hallgrímskirkju sími 510 1000. Opið virka daga frá 09.00 til 17.00. Á Þorláksmessu er opið frá 09.00 til 12.00.
Gamlársdagur 31. desember. Kl. 17.00: Hátíðahljómar við áramót. Þrír trompetar, pákur og orgel! Ásgeir H. Steingrímsson, Eiríkur Örn Pálsson og Einar St. Jónsson trompetleikarar, Eggert Pálsson pákuleikari og Hörður Áskelsson organisti færa okkur hátíðarstemmningu áramótanna með hátíðartónlist eftir m.a. Vivaldi, Pezel, Bach og Albinoni.
Gamlársdagur 31. desember kl. 18.00. Aftansöngur. Prestar eru séra Birgir Ásgeirsson og séra Jón Dalbú Hróbjartsson. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur ásamt einsöngvara. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson. Athöfninni er útvarpað.
Nýársdagur - 1. janúar 2012. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Irmu Sjöfn Óskarsdóttur. Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Birna Hjaltadóttir, 21/12 2011
Þessa daga eru Imbrudagar og á morgun, miðvikudaginn 21. desember, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, Sigrún V. Ásgeirsdóttir flytur hugvekju, Ása Guðjónsdóttir fer með bæn, Jón Dalbú er forsöngvari og Guðlaugur Leósson aðstoðar við altarisgönguna. Eins og venjulega er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar á eftir messunni og að þessu sinni í umsjón Birnu Gunnarsdóttur og Þorsteins Guðlaugssonar. Allir hjartanlega velkomnir í Hallgrímskirkju þennan síðasta miðvikudags-messudag fyrir jól.
Birna Hjaltadóttir, 20/12 2011
Á sunnudaginn 18. desember, sem er fjórði sunnudagur í aðventu, er barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Hallgrímskirkju kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari ásamt Magneu Sverrisdóttur djákna. Börn úr barnastarfi Hallgrímskirkju flytja helgileik. Fiðlusveit úr Allegro Suzuki-tónlistarskólanum leikur. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju leiðir messusönginn undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Hörður Áskelsson. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 15/12 2011
Á morgun, fimmtudaginn 15. desember, er síðasta kyrrðarstund fyrir jól í Hallgrímskirkju og hefst kl. 12.00. Leikin verður aðventutónlist á orgelið. Íhugun og bæn. Á eftir stundinni er léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 14/12 2011
Á morgun, miðvikudaginn 14. desember, er morgunmessa í Hallgrímskirkju kl. 08.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari, Helga Hróbjartsdóttir flytur hugvekju, Sigurður Björnsson fer með bæn, Sigrún V. Ásgeirsdóttir er forsöngvari og Guðlaugur Leósson aðstoðar við altarisgönguna. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar í umsjón Agnesar Gestsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 13/12 2011
Helgin í Hallgrímskirkju hefst á tónleikum á laugardaginn 10. desember, orgeljól - orgel fyrir alla! Þetta eru orgeltónleikar fyrir alla fjölskylduna, þar sem orgelið í Hallgrímskirkju og tónlist þess verður kynnt með völdum orgelverkum. Björn Steinar Sólbergsson flytur orgelver tengd jólum og aðventu, m.a. úr Fæðingu frelsarans eftir Messiaen, sem er afmælisbarn dagsins, J.S. Bach og fleiri. Kynnir er Hörður Áskelsson. Miðaverð er 1.500 kr./Listvinir 1000 kr./ókeypis fyrir börn.
Kl. 17.00 og kl. 20.00 eru jólatónleikar Karlakórs Reykjavíkur. Stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson, gestur kórsins er Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópransöngkona, orgelleikari er Lenka Mátéová, trompetleikarar eru Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson og slagverksleikari er Eggert Pálsson. Á efnisskránni eru meðal annars verk César Franck, Adolphe Adam, Gustav Holst, Sigvalda Kaldalóns og Franz Gruber. Miðasala á karlakorreykjavikur.is og við innganginn.
Á sunnudaginn 11. desember, sem er þriðji sunnudagur í aðventu, er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Kvennakór Háskóla Íslands leiðir messusönginn undir stjórn Margrétar Bóasdóttur og syngur verk eftir Eleanor Daley, Gabriel Fauré og franskt jólalag í útsetningu David Willcock í messunni. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur djákna. Kaffisopi á eftir messu. Allir hjartanlega velkomnir.
Kl. 17.00 og 20.00 eru jólatónleikar Karlakórs Reykjavíkur. Sjá laugardagsauglýsingu fyrir ofan.
Birna Hjaltadóttir, 9/12 2011
Í kvöld kl. 20.00 eru jólatónleikar í Hallgrímskirkju “Gleði- og friðarjól” og rennur ágóði tónleikanna til Fjölskylduhjálpar Íslands og Rauða krossins. Á tónleikunum koma fram: Femmes Fatales, barnakór Háteigsskóla, Valkyrjurnar - kvennakór Breiðholts, félagar úr Kammerkór Reykjavíkur, Vocal Project, rappararnir Ástþór Óðinn og Ká Eff Bé og Magnús Eiríksson, sem er sérstakur gestur kvöldsins. Miðasala er við innganginn og er miðaverð kr. 3000. Einnig er hægt að panta miða í síma 863 3933.
Birna Hjaltadóttir, 8/12 2011
Á morgun, fimmtudaginn 8. desember, er kyrrðarstund II á aðventu kl. 12.00. Orgeltónlist og íhugun. Léttur hádegisverður í safnaðarsal kirkjunnar á eftir. Allir hjartanlega velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 7/12 2011