Fyrirbænaguðsþjónusta
Alla þriðjudaga, allt árið um kring, er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30 til 11.00. Annan hvorn þriðjudag er altarisganga. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 19/11 2007
Alla þriðjudaga, allt árið um kring, er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30 til 11.00. Annan hvorn þriðjudag er altarisganga. Beðið fyrir sjúkum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 19/11 2007
Á mánudögum kl. 12.15 er bænastund í Hallgrímskirkju inni við Maríu myndina, sem er eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Bænastundina leiðir Sigrún V. Ásgeirsdóttir.
Birna Hjaltadóttir, 18/11 2007
Sunnudagurinn 18. nóvember, sem er tuttugasti og fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð, hefst á fræðslumorgni kl. 10.00 í safnaðarsal kirkjunnar. Erindið nefnist Dýrt metur Drottinn dauða minn - Kierkegaard og efnishyggjan. Dr. Birna Bjarnadóttir, sem er dósent og forstöðumaður íslenskudeildar Manitóbaháskóla í Winnipeg, fjallar um sýn danska trúarheimspekingsins Kierkegaard á trúarhugsun samtíma síns. Að fræðsluerindinu loknu er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Lára Bryndís Eggertsdóttir. Félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju leiða messusönginn. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kaffisopi að venju eftir messu.
Birna Hjaltadóttir, 15/11 2007
Alla fimmtudaga kl. 12.00 - 12.30 er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju. Orgelleikur og hugvekja/bæn. Léttur hádegisverður gegn vægu verði í safnaðarsal á eftir. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 14/11 2007
Að venju er árdegismessa á morgun, miðvikudaginn 14. nóvember, kl. 08.00. Að þessu sinni er það séra Ása Björk Ólafsdóttir sem þjónar fyrir altari, hugvekju flytur Sigrún V. Ásgeirsdóttir, Kristján Þorgeirsson les bænina og Grétar Einarsson er forsöngvari. Á eftir er léttur morgunverður í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Verið öll velkomin.
Birna Hjaltadóttir, 13/11 2007
Sunnudagurinn 11. nóvember, sem er tuttugasti og þriðji sunnudagur eftir þrenningarhátíð og jafnframt Kristniboðsdagurinn, hefst með fræðslumorgni kl. 10.00 í safnaðarsal Hallgrímskirkju. Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson flytur erindi um efnið: Á akrinum í Afríku. Séra Jakob Ágúst, sem lét nýlega af störfum dómkirkjuprests, dvaldi í Afríku um skeið síðastliðið vor og hyggst fara fleiri ferðir á næstunni. Í myndum og máli reifar hann gagnkvæm áhrif kristniboðsins á gesti og heimamenn og á hvern hátt íslenska kirkjan getur stutt vini okkar í Afríku á 21. öldinni. Að fræðsluerindinu loknu er gengið til kirkju og þar hefst messa og barnastarf kl. 11.00. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Kristjáni Vali Ingólfssyni. Messuþjónar aðstoða. Drengjakór Reykjavíkur í Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kaffisopi eftir messu.
Um kvöldið eru tónleikar kl. 20.00 undir yfirskriftinni a cappella - frá endurreisn til samtíma. Schola cantorum syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar kantors. Á efnisskránni eru verk eftir Gesualdo, Heinrich Schütz, Johannes Brahms, Knut Nysted, Arvo Pärt, Þorkel Sigurbjörnsson og Kjell Mörk Karlsen. Miðaverð kr. 2000.-/15.00.-
Birna Hjaltadóttir, 8/11 2007
Alla miðvikudaga allt árið um kring er messa kl. 08.00 í kór Hallgrímskirkju. Nú er aðventan á næsta leiti og nauðsynlegt fyrir sálina að fá kyrrláta stund með hugvekju og bæn, áður en gengið er út í dagsins ys og þys. Á morgun, miðvikudaginn 7. nóvember, er það séra María Ágústsdóttir sem þjónar fyrir altari, séra Kristján Valur Ingólfsson flytur hugvekju og Vilhjálmur Grímsson fer með bænina. Á eftir messunni, sem stendur yfir í um það bil 40 mínútur, er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 6/11 2007
Alla þriðjudaga er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju. Athöfnin byrjar kl. 10.30 og stendur yfir í hálfa klukkustund. Beðið fyrir sjúkum. Annan hvorn þriðjudag er altarisganga. Allir velkomnir.
Kl. 11.00 - 14.00 er starf eldri borgara í kórkjallara (einnig á föstudögum á sama tíma) undir stjórn Margrétar Hróbjartsdóttur. Leikfimi, léttur hádegisverður og samverustund. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 5/11 2007
Sunnudagurinn 4. nóvember, sem er Allra heilagra messa, hefst með fræðslumorgni kl. 10.00. Séra Birgir Ásgeirsson flytur erindi um Sorg í lífi og starfi. Séra Birgir er fyrrverandi sjúkrahússprestur, nú prestur í Hallgrímskirkju. Erindi hans minnir á, að sorg og úrvinnsla hennar varðar margt það, sem heyrir til hins hversdagslega, og fær því oft litla athygli, þótt hún grafi um sig, stundum með alvarlegum afleiðingum. Að erindinu loknu er messa og barnastarf kl. 11.00. Séra María Ágústsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Birgi Ásgeirssyni. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Hörður Áskelsson og Mótettukór Hallgrímskirkju leiðir messusönginn. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna. Kaffisopi eftir messu. Kl. 17.00 eru tónleikar: Hrífandi sálumessur í flutningi Mótettukórs Hallgrímskirkju. Þar munu verða fluttar sálumessur (requiem) eftir ítalska tónskáldið Ildebrando Pizzetti og franska tónskáldið Gabriel Fauré. Flytjendur auk Mótettukórsins eru Benedikt Ingólfsson bassi og Guðrún Marta Halldórsdóttir sópran. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Miðaverð kr. 2000.-/1500.-.
Birna Hjaltadóttir, 1/11 2007
Á morgun, fimmtudaginn 1. nóvember kl. 12.00, er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju að venju. Orgelleikur, hugvekja/bæn. Léttur hádegisverður á eftir gegn vægu verði í safnaðarsal kirkjunnar. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 31/10 2007
Opnunartími
Hallgrímskirkja er opin alla daga frá kl. 09.00 til kl. 17.00.
Sýning í anddyri: Prentlist og Passíusálmar. Listvinafélag Hallgrímskirkju í samstarfi við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn. Sýningin er fram í september.
Viðtalstímar
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson, þriðjud. - föstud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6692
Sr. Birgir Ásgeirsson, mánud. - fimmtud. kl. 11.00 - 12.00 - s. 693 6689.


Hallgrímskirkja á kirkjukort.net
Turninn
Turninn er opinn frá 09.00 til 17.00 alla daga. Aðgangseyrir kr. 500.- fyrir fullorðna, kr. 100.- fyrir börn 7-14 ára.
The tower is open from 9 am to 5 pm. Adults ISkr 500, children 7-14 years ISkr 100.
Kyrrðarstund kl. 12.00. Frá september til maí.
Hallgrímskirkja, Skólavörðuholti, pósthólf 651, 121 Reykjavík. Sími 510 1000 , fax 510 1010 · Kerfi ![]()