Alla miðvikudaga allt árið um kring er árdegismessa kl. 08.00 í Hallgrímskirkju. Í dagsins önn og amstri er gott að tylla sér niður og fá andlega næringu árla dags áður en gengið er út í daginn. Á morgun, miðvikudaginn 31. október, er það séra Birgir Ásgeirsson sem þjónar fyrir altari, Þorsteinn Guðlaugsson flytur hugvekju, Grétar Einarsson fer með bæn og Sigrún V. Ásgeirsdóttir er forsöngvari. Á eftir er sameiginlegur morgunverður í safnaðarsalnum. Allir velkomnir. Verið með í sókninni.
Birna Hjaltadóttir, 30/10 2007
Laugardaginn 3. nóvember er orgelandakt kl. 12.00 í Hallgrímskirkju. Björn Steinar Sólbergsson leikur á Klais orgelið og Mótettukór Hallgrímskirkju syngur verk eftir Gabriel Fauré, Johann Sebastian Bach og Max Reger. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson les ritningarvers og fer með bæn. Aðgangur ókeypis.
Birna Hjaltadóttir, 30/10 2007
Á þriðjudögum er hálfrar stundar athöfn í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30 - 11.00, þar sem beðið er fyrir sjúkum. Annan hvorn þriðjudag er altarisganga. Í kórkjallara kirkjunnar er starf eldri borgara alla þriðjudaga og föstudaga frá kl. 11.00 til 14.00. Umsjón með starfi eldri borgara hefur Margrét Hróbjartsdóttir. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 29/10 2007
Á mánudögum yfir vetrartímann eru bænastundir í Hallgrímskirkju kl. 12.15 - 13.00. Umsjón með þessum bænastundum hefur Sigrún V. Ásgeirsdóttir. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 26/10 2007
Á sunnudaginn 28. október, sem er tuttugasti og fyrsti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, er hátíðarmessa kl. 11:00 í Hallgrímskirkju í tilefni af ártíðardegi Hallgríms Péturssonar (27. október), en í ár eru 333 ár frá andláti þessa mikilhæfa og bænheita listamanns. Vart mun enn finnast sá uppvaxni Íslendingur, að hann ekki kunni einhver bænavers eftir Hallgrím. Tvær kirkjur á Íslandi eru kenndar við nafn hans, Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd og Hallgrímskirkja í Reykjavík. Messu sunnudagsins leiða prestar Hallgrímskirkju, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og sr. Birgir Ásgeirsson, sem einnig predikar. Við orgelið er Björn Steinar Sólbergsson og Mótettukórinn syngur. Messuþjónar aðstoða við messugjörðina. Barnastarfið fer fram með hefðbundnum hætti undir leiðsögn Magneu Sverrisdóttur, djákna. Að messu lokinni er boðið uppá kaffisopa í safnaðarsal kirkjunnar.
Kl. 14:00. Ensk messa í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarnasonar. Guðrún Finnbjarnardóttir leiðir sönginn og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið.
Birna Hjaltadóttir, 25/10 2007
Á fimmtudögum er kyrrðarstund í Hallgrímskirkju kl. 12.00. Orgelleikur, hugvekja/bæn. Á eftir er léttur hádegisverður í safnaðarsalnum gegn vægu verði. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 24/10 2007
Á þriðjudögum er fyrirbænaguðsþjónusta í kapellu Hallgrímskirkju kl. 10.30. Athöfnin stendur yfir í hálfa klukkustund. Annan hvorn þriðjudag er altarisganga. Beðið fyrir sjúkum. Kl. 11.00 - 13.00 er starf fyrir eldri borgara í kórkjallara Hallgrímskirkju undir stjórn Margrétar Hróbjartsdóttur.
Birna Hjaltadóttir, 22/10 2007
Sunnudagurinn 21. október, sem er tuttugasti sunnudagur eftir þrenningarhátíð, hefst með fræðslumorgni kl. 10.00. Efni hans heitir: Nýja biblíuþýðingin: kirkjubiblía, biblíuhefð og tryggðin við frumtextann. Dr. Guðrún Kvaran er prófessor við hugvísindadeild Háskóla Íslands. Hún kom að nýrri þýðingu Biblíunnar sem formaður þýðingarnefndar Gamla testamentisins og apókrýfu bókanna og var einnig í þýðingarnefnd Nýja testamentisins. Í erindinu verður fjallað um þá vinnu alla, biblíuhefðina og trúna við frumtextann og rætt um breytt viðhorf til tungumálsins. Að loknum fræðslumorgni er messa og barnastarf kl. 11.00. Biblían verður borin inn í kirkjuna af unglingi í inngöngusálmi messunnar ásamt ljósberum og krossbera. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt séra Guðna Má Harðarsyni, skólapresti og hópi messuþjóna. Barnastarfið er í umsjá Magneu Sverrisdóttur, djákna, en börnin taka einnig á móti nýju Biblíunni í sitt starf. Hópur úr Mótettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar, kantors, sem einnig er organisti. Söfnun dagsins rennur til Hins íslenska Biblíufélags. Kl. 17.00 eru tónleikar, þar sem Jón Þorsteinsson, tenórsöngvari, flytur 15 sálma af nýlega útkomnum hljómdiski sínum, sem ber nafnið “Ó Jesú, að mér snú”, við undirleik Harðar Áskelssonar, organista.
Lesa áfram …
Birna Hjaltadóttir, 18/10 2007
Á miðvikudögum allt árið um kring er árdegismessa í kór Hallgrímskirkju kl. 08.00. Gott er að byrja daginn á kyrrlátri stund í kirkjunni áður en gengið er út í ys og þys borgarinnar. Messan stendur yfir í um það bil 40 mínútur. Á morgun, miðvikudaginn 17. október, er það séra Birgir Ásgeirsson sem þjónar fyrir altari og flytur hugvekju, Birna Hjaltadóttir fer með bæn og Sigurður Björnsson er forsöngvari. Á eftir fáum við okkur léttan morgunverð og spjöllum saman yfir kaffibolla í safnaðarsalnum. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 16/10 2007
Á þriðjudögum, allt árið um kring, er fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30 - 11.00 í kapellu Hallgrímskirkju. Beðið fyrir sjúkum. Annað hvort skipti er altarisganga. Allir velkomnir.
Birna Hjaltadóttir, 15/10 2007